Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 35

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 35
9.’91 FREYR 395 Dóttir Draums 84030 með fláttu. (Ljósm. M.E.). að vekja athygli að fram skuli koma tvær kvígur með þennan galla úr ekki stærri hópi en af- kvæmahópurinn er. Það bendir eindregið til að tíðni þessa galla geti enn verið allhá í kúastofninum þó að hann komi lítið í ljós. Þessir gripir koma auk þess einnig fram í héraði þar sem ekki eru heimildir fyrir að mikið hafi verið um gall- ann fyrr á öldinni. A þessu máli er vakin athygli hér til að brýna fyrir mönnum að láta vita ef fram koma gripir með um- ræddan galla, eða aðra galla sem grunur kann að falla á að geti verið duldir erfðagallar. Fyrsta skilyrði þess að geta útrýmt slíkum göllum úr stofninum er að geta fundið þá þar sem þeir leynast. Til að það megi takast er nauðsynlegt að afla vitneskju um hvern grip þar sem fram kemur slík veila. Einn þáttur sem hugsanlega get- ur haft áhrif á það hve vel slíkur galli kemur í ljós er það að ætla má að margir bændur skoði nákvæm- lega spena og júgurstæði hjá vænt- anlegum ásetningskvígum. Ein- hverju kann því að vera fargað af slíkum gripum sem ungkálfum án þess að um það sé látið vita. Vegna þess hve ætla verður að eiginleik- inn sé þó orðinn fátíður geta slíkir gripir því horfið um lengri tíma. Hins vegar er nauðsynlegt að slíkir gallar komi fram ef um þá er að ræða. Slíkt eftirlit ásetningskvígna á að vera sjálfsagður hlutur á öllum búum og þannig að vera mögulegt að koma í veg fyrir að slíkir gripir séu aldir upp. FASTEIGNA H MIÐSTÖÐIN F Skipholti 50b, 105 Reykjavík Sími: 91 - 62 20 30 Fax: 91 - 62 22 90 BÚJARÐIR Eins og undanfarin ár önnumst við milligöngu um kaup og sölu bújarða. Nú fer í hönd aðalsöiutími, töluverð eftirspurn. Getum bœtt við jörðum á söluskrá. Nánari upplýsingar veitir: MagnÚS Leopoldson á skrifstofu FM, Skipholti 50b. Sími: 91-6220 30 Fax: 91-62 2290 Hringið - skrifið eða komið á skrifstofu okkar og við veitum fúslega nánari upplýsingar

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.