Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 36

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 36
396 FREYR 9.'91 Bœndur hefja uppgrœðslu á Markarfljótsaurum Helga Guðrún Jónasdóttir Þrír bœndur íAustur-Landeyjum gerðu nýlega tímamóta samkomulag við Landgrœðslu ríkisins, RALA og Rannsóknarstöð skógrœktarinnar á Mógilsá um umfangsmikla upp- grœðslu og landgrœðslutilraunir á stóru landsvœði á Markarfljófsaurum. Samningsaðilar að undirskrift lokinni. F. v. Magnús Finnbogason, oddviti, Eiður Hilmisson, Búlandi, Sigmar Ólafsson, Voðmúlastaðamiðhjáleigu, Arni Bragason, forstöðumaður á Mógilsá, Sveinn Runólfsson, landgrœðslu- stjóri, Guðlaugur Jónsscn, Voðmúlastöðum og Þorsteinn Tómason, forstjóri RALA. Tímamótasamningur. Bændurnir þrír, þeir Guðlaugur Jónsson á Voðmúlastöðum, Eiður Hilmisson á Búlandi og Sigmar Ólafsson á Voðmúlastaðamiðhjá- leigu, undirrituðu í apríl sl., ásamt Landgræðslunni, RALA og Rann- sóknarstöðinni, samning sem kveður á um náið samstarf þessara aðila við uppgræðslu 350 ha land- flæmis á Markarfljótsaurum. Enn- fremur er í samningnum gert ráð fyrir svigrúmi til mikilvægra land- græðslutilrauna á þessu svæði. Þetta er fyrsta samkomulag sinnar tegundar og telst með réttu tíma- mótasamningur. Þáttur bœnda stór. í samningnum skuldbinda landeig- endur sig til að girða í einu lagi úr Stóru-Dímon suður að núverandi þjóðvegi nr. 1, á hreppamörkun- um milli Austur-Landeyjahrepps og Vestur-Eyjafjallahrepps og vestur með þjóðveginum alveg að landamörkum bæjarins Brúar. Að öðru leyti takmarkst landssvæðið þannig að vestur mark þess er land Brúar og að því slepptu girðing sem nær þvert fyrir land Búlands og Voðmúlastaðamiðhjáleigu, í markagirðingu milli Fljótshlíðar og Voðmúlastðamiðhjáleigu, er markar um leið norðurmark spild- unnar. Töluverður hluti landsins er þegar girtur og verður rafgirðing lögð um það sem á vantar. Land- eigendur taka að sér að setja upp og halda girðingum við, en Land- græðslan mun veita við það aðstoð eftir föngum. Þá annast landeigendurnir sán- ingu og uppskeru á landssvæðinu. Fyrirhugað er að þarna verði fyrst og fremst grætt upp með lúpínu og þegar hefur verið sáð í 50 ha fyrir fræöflun. Landgræðslan mun selja landeigendum lúpínufræ á kostn- aðarverði, leiðbeina þeim um vinnslu og sáningu, auk þess að kaupa fræuppskeru á markaðs- verði hverju sinni. 15órasamningur. Samningurinn er gerður til 15 ára, frá 1. janúar 1991 til 31. desember 2005. A þessum tíma verður lands- svæðið friðað fyrir allri búfjárbeit. Þó er gert ráð fyrir að landeigend- urnir geti, í samráði við sérstaklega skipaða verkefnisstjórn, tekið ein- hvern hluta þess til annarra nota en kveðið er á um. En fyrst verða þeir að girða það land sérstaklega úr á eigin kostnað. Verkefnisstjórn- ina mynda einn fulltrúi landeig- enda ásamt fulltrúum Landgræðsl- unnar, RALA og Rannsókna- stöðvarinnar á Mógilsá. Auk þess að hafa eftirlit með uppgræðslunni og tilraunum sem þarna verða gerðar, er henni ætlað að meta árangur uppgræðslustarfsins einu sinni á ári. Þá mun fulltrúi landeig- enda í verkefnisstjórninni hafa yf-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.