Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 38

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 38
398 FREYR 9.’91 Eyjólfur ísólfsson var ráðinn kennari í hrossarækt með aðalá- herslu á kennslu í reiðmennsku og tamningu og þjálfun reiðhrossa við Bændaskólann á Hólum í Hjalta- dal frá 1. nóvember f990. Eyjólfur er tamningameistari að mennt og hefur lokið A-reiðkenn- ararprófi Félags tamningamanna. Aðalstarf Eyjólfs undanfarin ár hefur verið reiðkennsla og þjálfun reiðhrossa hér á landi og erlendis. Gunnar Rögnvaldsson var ráð- inn kennari í búfjárrækt við Bændaskólann á Hólum í Hjalta- dal frá hausti 1990. Gunnar er búfræðingur frá Hólaskóla árið 1985 og lauk bú- tækniprófi frá Nordisk Land- boskole á Fjóni árið 1989. Gunnar er frá Hrauni á Skaga. Sambýliskona hans er Laufey S. Jakobsdóttir frá Hallfreðarstaða- hjáleigu í Hróarstungu. Pór Þorbergsson var ráðinn landnýtingarráðunautur hjá Landsvirkjun frá 15. ágúst 1990. Verkefni hans verður að annast samskipti Landsvirkjunar við land- eigendur og sjá um málefni er varða uppgræðslu lands sem fyrir- tækið hefur með bændum. Þór hefur um árabil unnið þró- unarverkefni við uppbyggingu á landbúnaði á Suður-Grænlandi. Steinarr Bj. Guðmundsson var ráðinn héraðsráðunautur hjá Bún- aðarsambandi Austur-Skaftafells- sýslu frá síðustu áramótum. Steinar er búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri árið 1986 og lauk prófi í bútækni frá Nordisk Landboskole á Fjóni árið 1988 og viðbótarnámi í útflutningi búvara og störfum við þróunarað- stoð með áherslu á landbúnað, við sama skóla árið 1989. Verkefni Steinars eru almennar leiðbeiningar en Jón Finnur Hans- son, sem einnig er ráðunautur hjá sambandinu, sér um búreikninga og leiðbeiningar í hrossarækt á svæðinu. Sigurður Þórhallsson var ráðinn framkvæmdastjóri Landssam- bands hestamannafélaga frá 15. rnars sl. Sigurður er fæddur á Skriðu- landi í Kolbeinsdal í Skagafirði, sonur hjónanna Þórhalls Trausta- sonar, síðar bónda á Hofi í Hjalta- dal, og Helgu Jóhannsdóttur frá Möðruvöllum í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði. Sigurður hefur unnið sl. 26 ár við vátryggingastörf í Reykjavík. Kona hans er Sigríður Benedikts- dóttir frá Efra-Núpi í Miðfirði. Arvid Kro hefur verið ráðinn til að sinna málefnum loðdýraræktar á vegum Sambands ísl. loðdýra-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.