Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 40

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 40
400 FREYR 9.’91 Ársrit Skógrœktarfélags íslands 1990 Fyrir nokkru kom út Ársrit Skógræktarfélags íslands fyrir árið 1990. Ritið hefst á ávarpi Huldu Valtýsdóttur, formanns Skógrækt- arfélags íslands, þar sem hún kveður Sigurð Blöndal sem skóg- ræktarstjóra og býður Jón Lofts- son velkominn í starfið. Hulda á einnig viðtal við Sigurð Blöndal sem ber heitið: „Ókeypis trjáplönt- ur handa þjóðinni“ œtti að vera leiðarljós Alþingis. Sigurður H. Magnússon og Borgþór Magnús- son, sérfræðingar á Rala, skrifa greinina: Birkisáningar til land- grœðslu og skógrœktar, þar sem þeir greina frá rannsóknum sínum á þessu verkefni. Steindór Steindórsson frá Hlöð- um, sú aldna kempa, á greinina: Heiði, gróðurlendi - landslag - fjallvegir, í ritinu og gerir þar grein fyrir notkun þessara hugtaka í ís- lensku máli, en hún er fjölbreytt. Sigurður Blöndal skrifar stutta grein þar sem hann sýnir m.a. í máli og myndum breytingar á tveimur stöðum þar sem trjám var plantað; Gróðrarstöðinni á Akur- eyri árin 1908 og 1990 og Skógum undir Eyjafjöllum árin 1954 og 1990. Arnór Snorrason, áætlanafull- trúi hjá Skógrækt ríkisins, gerir grein fyrir verkefninu: Skipulag nytjaskógrœktar í öngulsstaða- hreppi í Eyjafirði, en þar er um að ræða áætlun sem hann hefur unn- ið. í tengslum við það skrifar Ing- ólfur Jóhannsson, garðyrkjufræð- ingur, um: Rœktun skjólbelta í Öngulstaðahreppi. Þá er að nefna greinina: Skógrækt á íslandi er vandasamt verkefni, en hún er eftir Jan-Erik Lundmark, prófessor í skógarjarð- vegsfræði í Ultuna, í þýðingu Sig- urður Blöndal. Arnór Snorrason skrifar greinma Skipulagning skógræktar, þarfa grein fyrir þá sem hyggjast hefja skógrækt, og Páll Lýðsson í Litlu-Sandvík skrif- ar um Skógræktarfélag Árnesinga 50 ára. Þá skrifar Svavar Sigur- mundsson cand. mag. um Örnefni og trjágróður vítt og breitt um landið. Hulda Valtýsdóttir á greinina Átak um landgrœðsluskóga 1990, en það er greinargerð flutt á aðal- fundi Skógræktarfélags íslands Eftirfarandi limra er tekin trausta- taki úr vísnaþætti í blaðinu Austra á Egilsstöðum 21. mars sl., en þátt- urinn er f umsjón Arndísar Þor- valdsdóttur. 1990. Andrés Arnalds beitarþols- fræðingur hjá Landgræðslu ríkisins skrifar um Friðun Pórsmerkur- svœðisins. Lengsta grein ritsins er eftir þá Arnór Snorrason og Sigurð Blön- dal og ber heitið: Skógur og skóg- arbúskapur í Arkhangelskhéraði, ferðasögubrot, og Sigurður Blön- dal og Þórarinn Benedikz skrifa frá sömu slóðum greinina: Öflun lerk- isfrœs frá Arkangelskhéraði. Að lokum eru í ritinu minning- arorð um Andrés Kristjánsson rit- stjóra, Erling Jóhannsson bónda og skógarvörð og séra Trausta Pét- ursson, og skýrslur frá Skógrækt ríkisins og Skógræktarfélagi íslands. Ábyrgðarmaður Ársrits Skóg- ræktarfélags íslands 1990 er Sig- urður Blöndal en ásamt honum hafði Halldór J. Jónsson umsjón með útgáfunni. Ritið er unnið hjá ísafoldarprentsmiðju hf. Hér er vandað og læsilegt rit á ferð. Þeir sem hug hafa á að eign- ast það geta snúið sér til Skóg- ræktarfélags íslands, Ránargötu 18, Reykjavík, síma 91-18150. M.E. „Skúringatæknir“ hjá skrifstofu Hafnarbæjar í Hornafirði sendi tæknimönnum bæjarins eftirfar- andi limru að gefnu tilefni: Á hlaupum með hæla og pinna þeir hönnun og mælingum sinna. Bærinn vex ekki villt, allt er skipulagsskylt, nema skrifborðin þar sem þeir vinna. Óskipulagt skipulag

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.