Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 41
/Vý'77' NAFN ■ NÝTTÚTLIT ■ NÝTTNAFN NÝTTÚTLIT ■ NÝTTNAFN ■ NÝTTÚTLIT
f.miólk
1/4 lítri
Nýmjólk ínýjum ham...
G MJÓLK
G-mjólkin geymist mánuðum saman, utan
kælis, sem kemur sér vel þegar langt er í
næstu búð. Vel kæld bragðast hún sem besta
nýmjólk og þegar Cappuccino-kaffi er annars
vegar hentar engin mjólk betur.
eggðu nýja útlitið á minnið.
nmr
h'æst einnig í I lítra fernum.
G-MJÓLK ■ GEYMSLUPOLIN MJÓLK G-MJÓLK GEYMSLUPOLIN lííJÓLK G-MJÓLK
AWWW' TIL BLAÐSINS^B
Búfé í Danmörku Afréttari fyrir sauðfé
Árið 1990 var fjöldi búfjár í Dan-
mörku eftirfarandi, talinn í þús-
undum: Hestar 38, mjólkurkýr
753, nautgripir alls 2239, svín, fuíl-
orðin 950, svín alls 9497, Hænsni
15.498 og sauðfé 159 þúsund.
Fjöldi bújarða í Danmörku var
árið 1988 alls 101,554, þar af voru
94,822 í einkaeign.
(Tindskrift for landökonomi).
Hr. ritstjóri!
Mér datt í hug að sénda þér
heimatilbúna uppskrift af drykk
handa kindum sem lent hafa í af-
veltu eða öðrum álíka hremming-
um.
Tekinn er hálfur lítri af mjólk
eða rúmlega það og velgdur.
Mjólkinni er hellt í hálslanga
stútmjóa flösku. Út í hana eru
muldar 3-4 töflur af súlfa (Súlfa-
dimdin, 2,5 g). Hrist.
Þegar kindur hafa fengið þenn-
an skammt í 2-3 mál, ásamt
annarri viðeigandi aðhlynningu,
fara þær yfirleitt að rétt við, - rísa á
fætur, éta hey, o.s.frv.
Með baráttukveðju til fjár-
bænda.
Sigrún E. Sigurjónsdóttir
Hrútatungu.