Freyr

Árgangur

Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 2

Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 2
UÞL *i FRÉTTAPUNKTAR '91 • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL - Evrópubandalagið hefur uppi á borðinu tillögur um róttæka endurskoðun á landbúnaðarstefnu bandalagsins. Þær felam.a. í sér beinar greiðslur til bænda, uppkaup og niðurskurð á útgjöldum til landbúnaðarmála. Talið er að þessar breytingar kosti EB tímabundið um 400 milljarða íslenskra króna meira á ári en núverandi stefna. Höfundur tillagnanna er Ray MacSharry, framkvæmda- stjóri landbúnaðarmála, sem segir þær miða að því að stöðva umfr amframleiðslu á búvörum og draga úr útgjöldum til landbúnaðarmála, þegar til lengri tíma er litið. Tillögurnar hafa verið gagnrýnar harðlega af landbúnaðar- ráðherra Breta fyrir að vera ekki nógu róttækar. Ríkisstjóm Ástralíu segir að útflutnings- bætur Evrópubandalagsins og Banda- ríkjanna séu að ganga af áströlskum landbún- aði dauðum. Neil Blewett, viðskiptaráðherra Ástralíu hitti nýlega Ray MacSharry, fram- kvæmdastjóra landbúnaðarmála, og Frans Andriessen, sem hefur umsjón með utanríkis- viðskiptum bandalagsins, að máli og tjáði þeim að viðskiptastríði EB og Bandaríkjanna yrði að linna þar sem óhóflegur stuðningur beggja aðila við útflutning á landbúnaðarafurðum ylli bændum í Ástralíu miklum skaða. Þá hvatti Blewett framkvæmdastjóm EB og Banda- ríkjastjórn til að greiða fyrir því að GATT - viðræðumar skiluðu áþreifanlegum árangri. i DANIR Framkvæmdastjórn EB lét gera skoð- anakönnun í öllum aðildarríkjum bandalagsins til að kanna hug almennings til fyrirhugaðrar endurskoðunnar á landbún- aðarstefnuþess. Iljóskomaðrúmurhelmingur aðspurðra, eða 57%, sagðist vera hlynntur endurskoðun, jafnvel þótt brey tingarnar hefðu tímabundið aukin útgjöld til landbúnaðarmála í för með sér. Aðeins 13% kusu óbreytta stefnu. Heildamiðurstöður vom þær að í Portúgal voru 73% fólks hlynnt endurskoðun stefnunnar. í Lúxembúrg, áBredandi,írlandi, Frakklandi, Spáni og á Italíu vor hins vegar 66% hlynnt endurskoðun, 58% í Hollandi, 56% í Belgíu, 40% á Tyrklandi en aðeins 30% voru henni hlynnt í Danmörku. Það vekur athygli að aðeins 2 af 12 aðildarlöndum EB eru fylgjandi núverandi stefnu og að Danir virðast vera meðal þeirra allra ánægðustu. Inýlegri skýrslu um neyslu mjólkuraf- urða, sem framkvæmdastjórn Evrópu- bandalagsins hefur látið gera, kemur fram hörð gagnrýni á framleiðendur jurtaviðbits. Þeir eru sakaðir um að blekkja neytendur vísvitandi með villandi umbúðamerkingum til þess að kaupa vöm sem er að mestu vatn en selt á sama verði og smjör. Þá segir í skýrslunni að jurtaviðbitið sé oft á tíðumjafn fitandi og smjör andstætt því sem framleiðendur halda að ney t- endum. Neysla á smjöri hefur minnkað veru- legaíEB áundanfömumámmeðaumtæp 13% frá 1987 til 1990 og búist er við að hún dragist saman um tæp 6% á árunum 1990 til 1992. Fyrir vikið hefur smjörfjall EB stækkað enn frekar og ekkert útlit fyrir að það minnki í bráð. Á Irlandi hafa menn þurft að bregða á það ráð að geyma umff ambirgðir í kæligámum á skips- fjöl þar sem geymslurými í landi er fullnýtt. Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins • Bændahöllinni v/Hagatorg • 107 RVK • Sími 20025/620025 • Fax 628290

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.