Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 7
20.’91
FREYR 795
RITSTJÓRNARGREIN ------------
Ferðaþjónusta bœnda f sókn
í þeim erfiðleikum sem gengið hafa yfir
íslenskan landbúnað að undaförnu hefur
verið bent á ferðaþjónustu sem eina já-
kvæðustu nýbreytni í þessum atvinnuvegi
sem til hefur verið stofnað síðasta áratug-
inn. Við uppbyggingu greinarinnar hefur
þurft að mörgu að hyggja. Sem samnefn-
ara þess má e.t.v. nefna að það hefur
komið sífellt betur í ljós að ferðaþjónusta
er kröfuhart starf, þar sem fólk sem lagt
hefur hana fyrir sig hefur þurft að læra
margt frá grunni.
Fullyrða má að Ferðaþjónusta bænda
hafi nú fest sig í sessi innanlands og styrkt
sig erlendis, einkum í Evrópumarkaði.
Almenningur hér á landi veit núorðið vel
um að Ferðaþjónusta bænda er til og nýtir
sér hana í vaxandi mæli. Erlendis á hún
einnig reglubundin viðskipti við hátt í 40
ferðaskrifstofur og söluaðila.
Pessi árangur gefur þó ekki tilefni til að
slaka á. Vel þarf að fylgja á eftir til að
halda þeirri stöðu sem áunnist hefur og að
bæta hana. Vitað er að ferðamenn umbera
ýmislegt í þjónustunni meðan á uppbygg-
ingu hennar stendur. Þeir sem veita þessa
þjónustu þurfa því að gæta að því hvað
betur má fara, annars fara ferðamenn að
leita annað og góður árangur getur tapast
á stuttum tíma.
Með hverju árinu sem líður verður
ferðaþjónusta afgerandi þáttur í afkomu
fleiri bændafjölskyldna. Jafnframt er
Ferðaþjónusta bænda að breytast. Til
skamms tíma var það sá tími sem Eddu-
hótelin höfðu opið sem var ráðandi um
rekstur ferðaþjónustu í dreifbýli. Sá tími
markaðist af sumarleyfum í skólum þar
sem þessi hótel nota skólahúsnæði undir
starfsemi sína. Rekstrartími þeirra stóð frá
því snemma í júní til loka ágústmánaðar.
Vert er hér að minna á og þakka það
brautryðjendastarf sem Edduhótelin hafa
unnið í eflingu ferðaþjónustu í dreifbýli og
óska þeim góðs gengis sem og annarri
ferðaþjónustu í landinu.
Með ferðaþjónustu á vegum bænda er
stigið skrefi lengra í að bjóða upp á ferða-
þjónustu til eflingar atvinnu í sveitum.
Kostur gefst nú á því að veita þessa þjón-
ustu á hvaða tíma árs sem er enda eru
byggingar viðkomandi ferðaþjónustu
bænda alveg í eigu heimamanna. Þetta
leiðir til þess að þörf er fyrir aukna mark-
aðssókn fyrir ferðaþjónustuna bæði innan-
lands og utan. Sú sókn fer vel saman við
það að ferðavenjur fólks eru að breytast og
hættar að einskorðast við sumarið, saman-
ber ferðir íslendinga til útlanda á öllum
tímum árs.
Liður í þessari markaðssókn er að auka
þarf framboð á afþreyingu utan annatím-
ans á sumrin. Sú þjónusta mætti vera á
vegum annarra en þeirra sem bjóða upp á
gistingu og fæði og kallaði þá á samstarf
fleiri aðila sem vinna að þessum málum.
í þessu er fólginn sá vaxtarbroddur sem
Ferðaþjónusta bænda stendur gagnvart
um þessar mundir. Spyrja má hvað þurfi til
til að vel megi takast að nýta hann. Svarið
er að í fyrsta lagi þurfa að vanda vel til allra
þátta og bæta jafnóðum úr því sem í ljós
kemur að betur megi fara. Mistök á einum
stað skaða einnig aðra í greininni.
í öðru lagi þurfa allir sem nálægt þessum
málum koma að standa saman því að
freistingin að ná í stundargróða er eðlilega
alltaf fyrir hendi.
Að lokum má nefna að brýnt er að fólk
sem starfar við þessa þjónustu afli sér sem
bestrar menntunar í greininni. í því skyni
Frh. á bls. 824.