Freyr

Árgangur

Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 19

Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 19
20.'91 FREYR 807 Frá íslensku sýningunni. F.v. Björn Sveinsson, Sólveig Einarsdóttir álfadrottningin, Tómas Ragnarsson og Sigrún Sigurðardóttir, fjallkonan. (Ljósm. Erlingur A. Jónsson). sinn að landbúnaðarráðuneytið, undir forystu Sveinbjörns Dag- finnssonar, ráðuneytisstjóra, stóð þarna fyrir gestaboði sem þótti takast mjög vel. Ráðuneytið kom þarna með íslenska veitingamenn, hina sömu og sjá um veitingar í Borgartúni 6 í Reykjavík. Þarna var og íslenski sendiherrann í Bonn. Hjálmar Hannesson (Jóns- sonar, fyrrum sendiherra). Voru f leiri boðniren íslendingar? Já, þarna voru allmargir Þjóðverj- ar boðnir, og þarna voru allir vel- komnir sem vildu koma við. Þessi mannfagnaður var haldinn á sýn- ingarsvæðinu, á íslenska „standin- um“. Það er ákaflega erfitt að lýsa þessari sýningu sem heild. Helst þurfa menn að sjá þetta sjálfir til þess að gera sér grein fyrir því hvað er að gerast. íslensku sýningaratriðin sem þarna voru þóttu takast mjög vel. Þau voru fólgin í fánareið á íslensk- um hestum, síðan komu fram þekktir knapar, sumir erlendir, sem höfðu unnið til verðlauna á Evrópumeistaramótum. Það sem mér þótti ekki síst athyglisvert voru tvær íslenskar konur, sem komu fram, önnur á skautbúningi, hin í bláum kyrtli sem Fjallkona. Sú sem var á skautbúningnum var kynnt sem álfadrottning. Það var Sólveig Einarsdóttir á Varmalæk. Fjallkonan var Sigrún Sigurðar- dóttir úr Kópavogi, kona Erlings Jónssonar, ritstjóra Eiðfaxa. Þær riðu í söðlum og það atriði var fallegt og skemmtilegt. íslenski hesturinn hefur alltaf vakið þarna mikla athygli þegar hann hefur komið fram. Á sýningunni var geysifjölbreytt úrval af vörum, en þarna er ekkert kvikfé sýnt nema hestar. Að öðru leyti á þetta ekkert skylt við land- búnaðarsýningu. Mér hefur fundist að þessi sýninghafi vakiðoflitla athygli hér heima, ekki síst hvað íslenski hest- urinn er vinsæll þegar hann kemur í svona alþjóðlega sýningu. Hvað vinsældir snertir er hann alltaf toppatriði þegar hann kemur fram. Það sýnir það fyrst og fremst hvílíkan þjóðarauð við eigum í þessum hesti, meiri heldur en við höfum fram að þessu gert okkur grein fyrir, sagði Sigurður Líndal. J.J.D. Líflambaverð haustið 1991 Framleiðsluráð landbúnaðarins hefur ákveðið að líflambaverð haustið 1991 verði kr. 210 á kg lifandi þunga.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.