Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 21
20.’91
FREYR 809
eðlis að ekki var um sérstaka af-
greiðslu að ræða.
Fjallað var um 29 umsóknir um
framlög til búháttabreytinga, þar
af voru 26 samþykktar og þremur
hafnað.
Flest framlög voru veitt til ferða-
þjónustu og hrossaræktar eða 7 til
hvorrar greinar.
Eins og greint var frá í 20. tbl.
Freys 1990 hafði Framkvæmda-
nefnd búvörusamninga ritað
Framleiðnisjóði bréf í nóvember
1989 og gert að umtalsefni óeðli-
lega sauðfjáreign aðila sem gert
hafa samninga um leigu eða sölu á
fullvirðisrétti til kindakjötsfram-
leiðslu. Orðrétt sagði í bréfinu:
„Það eru því tilmæli Fram-
kvæmdanefndarinnar að Fram-
leiðnisjóður landbúnaðarins greiði
sauðfjárframleiðendum umsamd-
ar bætur því aðeins að fyrir liggi
vottorð forðagæslumanns eða
hreppstjóra um fjárfjölda hjá við-
komandi aðila nú í haust hvort sem
hann hefur samið um sölu eða
leigu á fullvirðisrétti til sauðfjár-
framleiðslu. Reynist fjöldi fjár um-
fram það sem af samningunum átti
að leiða er ekki unnt, að mati
Framkvæmdanefndar, að inna
greiðslur af hendi til aðilans fyrr en
bætt hefur verið úr.“
Á fundi í desember 1989 var
Framkvæmdanefndinni kynnt nið-
urstaða úr athugunum sjóðsins, en
þar kom fram að sauðfjáreign 15 til
20 aðila samrýmdist vart þeim
sam'ningum sem þeir höfðu gert
um sölu eða leigu á fullvirðisrétti.
Ákveðið var að leita álits hjá Ríkis-
lögmanni á réttarstöðu málsaðila.
Að fengnu áliti Ríkislögmanns
varð það sameiginleg niðurstaða
stjórnar Framleiðnisjóðs og Fram-
kvæmdanefndar búvörusamninga
að bjóða þeim framleiðendum sem
voru með leigusamninga að breyta
þeim til samræmis við fjáreign
sína. Jafnframt lækkaði leigu-
greiðsla. Allir framleiðendur sem
slíkt boð fengu tóku því.
Reiðhöllin í Reykjavík, sem í
október 1989 var slegin Fram-
leiðnisjóði, Stofnlánadeild land-
búnaðarins og Búnaðarbanka
íslands á nauðungaruppboði, er
ennþá í eigu þessara aðila og hefur
Stofnlánadeildin annast rekstur
hennar. Höllin hefur verið leigð til
ýmiss konar athafna, mest í tengsl-
um við hestamennsku.
Stefnt er að því að selja húsið hið
fyrsta.
í júnímánuði var Framleiðni-
sjóði slegin húseignin að Síðumúla
34 í Reykjavík, áður hús Grænmet-
isverslunar landbúnaðarins. Boðið
var í eignina eftir ósk frá fjármála -
og landbúnaðarráðuneytum, til að
reyna að tryggja að ákvæði í 52.
grein laga nr. 46 1985 nái fram að
ganga, en ráðuneytin sáu sér sjálf
ekki fært að gæta þessara hags-
muna.
Samkvæmt téðri lagagrein skal
söluandvirði fyrrnefndrar eignar
mynda sérstakan sjóð sem vera
skal í vörslu og undir stjórn Fram-
leiðnisjóðs landbúnaðarins og hafi
sjóðurinn það hlutverk að „styrkja
stofnræktun garðávaxta, rann-
sóknir og tilraunir með ræktun og
meðferð garðávaxta og vöruþróun
á þessu sviði“, eins og segir í lögun-
um.
í ársbyrjun 1991 tókst að selja
húsið fyrir allgott verð og eru líkur
til að samtals muni um 45 milljónir
króna skila sér í þennan sjóð á
næstu árum.
Aðlögun
Aðild Framleiðnisjóðs að búvöru-
samningi ríkis og bænda var marg-
þætt og útheimti miklar fjárskuld-
bindingar. Nú er þessu tímabili í
starfi sjóðsins nær lokið og þykir
því rétt að gefa heildaryfirlit um
framkvæmdina.
í búvörusamningi Stéttarsam-
bands bænda og ríkisins fyrir verð-
lagsárið 1987/1988 var byggt á
þeim forsendum að Framleiðni-
sjóður taki ábyrgð á fullvirðisrétti,
er nemur 3 milljónum lítra mjólkur
og 800 tonnum af kindakjöti, með
kaupum eða leigu á fullvirðisrétti
eða verðtryggingu.
Þessi kvöð var síðan framlengd í
nýjum búvörusamningi fyrir verð-
lagsárin 1988/1992.
Markmið samningsaðila var að
tryggja bændastéttinni launatekjur
af 3% meiri mjólkurframleiðslu og
7% meiri kindakjötsframleiðslu en
umsamið framleiðslumagn gaf til-
efni til. Auk þessa tryggði sjóður-
inn verð fyrir fjárstofn, sem felldur
1. Tafla Yfirlit um stuðning vlð Kindakjötsframleiðslu í millj.kr.
1985 1986 1987 1988 1989 1990 Alls
Kaupogleigabúmarks 8.0 19.0 20.5 7.5 6.4 8.0 69.4
Förgunarbætur. slátrukostn. fækkunarsamn. ogmild. sk. 68.5 98.5 67.3 17.3 24.6 276.2
Útfl.áb. v/240t. 1987 73.0 5.5 78.5
Kaup og leiga fullv.réttar 30.4 47.1 69.7 210.3
Markaðsmál 1.4 4.4 10.5 8.0 4.7 14.2 43.2
Fjárhagsl. endurskipul 8.0 2.0 3.0 13.0
Framlögtilsláturhúsa 7.3 7.3
Samtals kr. 16.7 99.9 161.9 205.9 103.6 109.8 588.0
Verðlag í janúar. 1991 47.6 214.7 302.3 301.9 81.6 109.8 1.057.8