Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 22
810 FREYR
20.’91
Sauöíjárrækt
Nautgriparækt
Loðdýrarækt
Búháttabreyt,
Markaösöílun
Atvinnuuppbygging
Fjármagnskostn.
Ranns, og þróun
Rekstur
0 20 40 60 80 100 120
Milljónir króna
Skipting á útgjöldum Framleiðnisjóðs landbúnaðarins árið 1990.
var í tengslum við afsal fullvirðis-
réttar.
Jafnframt var ákveðið að sjóður-
inn greiddi bændum fyrir fjárstofn,
sem felldur var til að fækka á fóðr-
um haustin 1986 og 1987. Lagðar
voru fram 25 milljónir króna til
viðbótar við útflutningsbætur og
einnig um 12 milljónir króna til að
milda verðskerðing vegna innleggs
1986, sem var umfram fullvirðis-
rétt en innan búmarks.
Greiðslur til að auðvelda sauð-
fjárbændum aðlögun að fullvirðis-
rétti námu um 65 millj. kr. vegna
framleiðslu ársins 1986, auk
greiðslna vegna samninga um sölu/
leigu á fullvirðisrétti og förgunar-
bætur.
Haustið 1986 var samið um kaup
eða leigu á nálega 450 tonna full-
virðisrétti til kindakjötsfram-
leiðslu, þar af var um 140 tonna
réttur leigður til þriggja ára sam-
kvæmt sérstöku tilboði um riðu-
niðurskurð.
í desember 1990 tókust samn-
ingar milli Framleiðnisjóðs og
landbúnaðarráðuneytis, í sam-
ræmi við samkomulag frá 1986, um
að ríkissjóður endurgreiddi sjóðn-
um 30,7 milljónir króna vegna
kostnaðar við þessa riðusamninga.
Við lokaafgreiðslu fjárlagafrum-
varps fyrir árið 1991 tókst landbún-
aðarráðuneytinu ekki að fá sam-
þykkta greiðsluheimild fyrir þess-
ari upphæð.
Tilvitnað samkomulag gerðu
ráðherrar fjármála og landbúnað-
armála haustið 1986, m.a. til að
unnt væri að mæta óskum Sauð-
fjárveikivarna og bænda um að
flýta riðuniðurskurði, en til þess
skorti þá fjármuni eftir hefðbundn-
um leiðum.
Á árinu 1987 féll á sjóðinn
greiðsla útflutningsbóta með um
250 tonnum af dilkakjöti, vegna
ábyrgðar hans á búvörusamningi,
þar eð ekki tókst að kaupa eða
leigja sem svaraði 800 tonna
ábyrgðinni haustið 1986. Nam sú
greiðsla alls um 78,5 millj. kr.
Haustið 1987 var samið um kaup
eða leigu á um 310 tonna rétti og
þar af eru um 115 tonn samkvæmt
sérstökum tilboðum Fram-
kvæmdanefndar búvörusamninga,
sem beint var til mjólkurfram-
leiðslusvæða og eldri bænda, auk
skiptitilboðs, þar sem mjólkur-
framleiðendum gafst kostur á að
láta rétt til kindakjötsframleiðslu í
skiptum fyrir mjólkurrétt.
Haustið 1988 var samið um kaup
eða leigu á um 215 tonna rétti og
þar af eru um 160 tonn samkvæmt
sértilboðum Framkvæmdanefndar
búvörusamninga.
Haustið 1989 var samið um kaup
eða leigu á um 230 tonna rétti og
eru um 74 tonn á vegum Fram-
kvæmdanefndar búvörusamninga.
Þrátt fyrir að almennt væri hætt
að kaupa eða leigja fullvirðisrétt,
gafst bændum sem voru að ljúka
samningsbundnu fjárleysi vegna
riðuniðurskurðar kostur á að selja
eða leigja fullvirðisrétt til kinda-
kjötsframleiðslu á árinu 1990,