Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 25
20.’91
FREYR 813
bænda var veitt framlag til aö yfir-
taka eignir þrotabús ísunga svf. á
Hvanneyri, til að koma þar upp
innflutningsbúi fyrir alifugla.
Framlagið nemur 19 milljónum
króna, auk þess sem lán til Isunga
svf. var afskrifað.
Heildarstuðningur við innflutn-
ingsbúið á Hvanneyri nemur því
um 25 milljónum króna.
Svínaræictarfélagi íslands var
veitt tveggja milljóna króna fram-
lag til að kosta úttekt á stöðu svína-
ræktarinnar og gefa út skýrslu um
niðurstöður hennar.
Á sviði fiskræktar er aðallega
veittur stuðningur til rannsókna og
ræktunartilrauna, svo og lítilshátt-
ar til fiskeldis. Heitið var tölu-
verðu fé til rannsókna á bleikju-
stofnum sem fara að mestu fram á
Hólum í Hjaltadal og Keldnaholti,
auk rannsókna á vegum Veiði-
málastofnunar, Búnaðarsamtaka
Vesturlands, og Búnaaðarsam-
banda Suðurlands og Austurlands.
Lagt var fram fé til að kosta gerð
nýrra forrita fyrir bændabókhald á
vegum Búnaðarfélags íslands, og
einnig til stuðnings við búnaðar-
samböndin til að þau geti aukið
bókhaldsþjónustu við bændur.
Stéttarsamband bænda fékk 7
milljón króna framlag til að leggja
fram fyrir hönd landbúnaðarins til
Bútæknihúss á Hvanneyri, móti
jafnháu framlagi úr byggingarsjóði
Rannsóknarráðs ríkisins.
Þá var Stéttarsambandinu heitið
framlagi til að standa straum af
kostnaði við starf atvinnumálafull-
trúa í tvö ár og einnig til að greiða
kostnað við að fylgjast með og taka
þátt í alþjóðasamningum um við-
skipti með landbúnaðarvörur.
Áð tillögu landbúnaðarráðu-
neytisins var lagt fram stofnfé til
„Smáverkefnasjóðs“, 3 milljónir
króna. Sjóðurinn lýtur stjórn sam-
starfsnefndar ráðuneytisins, Stétt-
arsamdands bænda og Framleiðni-
sjóðs og skal veita stuðning til
smærri viðfangsefna, sérstaklega
þar sem hefðbundnum framlögum
Framleiðnisjóðs verður ekki við
komið.
Veiðimálastofnun og Vatnafang
hf. fengu framlög og lán, alls 4.0
milljónir króna, til að auka veiðar
á vatnasilungi, kenna ný vinnu-
brögð við verkun og meðferð afl-
ans og vinna að markaðsöflun inn-
an lands sem utan. J?á fékk Veiði-
málastofun 750.000 krónu framlag
til að sinna rannsóknum á vatna-
svæðum hjá efnalitlum veiðifélög-
um.
Landssamband kanínubænda
fékk 7 milljón króna lán í septem-
ber, þar af voru 3 milljónir notaðar
til að greiða bændum fiðuinnlegg
ársins 1990 en afgangurinn var not-
aður til að bæta lausafjárstöðu Fín-
ullar hf.
Þá var afskrifað lán sem veitt var
til að stofna verðjöfnunarsjóð fyrir
fiðu, tæplega 1, milljónir
Til skógræktarátaks 1990 lagði
Framleiðnisjóður 2 milljónir króna
sem var ætlað að vera eins konar
táknrænt framlag landbúnaðarins
til átaksins. Skal fjórðungi fram-
lagsins varið til tilrauna með sein-
leystan tilbúin áburð við skógrækt.
Um kr. 8,1 milljón var varið til
að veita bændum og ráðunautum
námsstyrki vegna endurmenntun-
ar og nutu um 600 aðilar náms-
styrkja, þar af aðeins þrír ráðu-
nautar til ferða og lengri dvala
erlendis.
Til verkefna sem tengd eru
Átaksverkefni í Vestur - Húna-
vatnssýslu var veitt samtals
2.550.000 krónum. Þessu fé var
varið til þátttöku í kostnaði við
stofnun „Græna hjólsins“, spuna-
verksmiðju og markaðssetningu á
hreinsaðri ull og hestum.
Rannsóknastofnun landbúnað-
arins fékk framlög til nokkurra
þátta bleikjurannsókna og rann-
sókna á kindakjöti, einnig fengu
Ræktunarfélag Norðurlands og
Rannsóknarstofa mjólkuriðnaðar-
ins framlög til rannsóknarverk-
efna.
Til markaðsöflunar af ýmsu tagi
4. Tafla. yfirlit um stuðning við mjólkur- og nautakjötsframleiðslu, í millj. kr.
1985 1986 1987 1988 1989 1990 AUs
Kaupogleigabúmarks 4.0 9.5 10.5 1.0 1.0 1.1 27.7
Kaup á fullv.rétti 1986. 9.0 12.7 14.0 13.1 48.8
Sérstökaukningáfullv.réttiogeldriverðábyrgöir . . 32.7 2.1 34.8
Útfl.áb.v/mjólkur 9.1 3.3 12.4
Kaup/leigaáfullv.rétti 11.6 21.1 30.9 32.4 96.0
Ungkálfaslátrun 8.8 22.6 8.2 39.6
Niðurgreiðsla nautakjöts 55.7 28.5 84.2
Markaðsmál 3.0 3.5 2.0 0.3 1.0 9.8
Fjárhagslegendurskipulaging 7.0 4.0 2.0 1.5 14.5
Samtals kr. 4.0 70.0 122.7 85.9 50.1 34.5 367.2
Á verðlagi í jan. 1991 11.4 150.5 229.0 126.0 62.9 34.5 614.3
Endurgr. til bænda v/nautakjöts 14.7 12.3 2.7 26.2 55.9