Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 26
814 FREYR
20.’91
5. tafla. Yfirlit um hlutfallslega skiptingu framlaga
úr framleiðslusjóðs landbúnaðarins 1985 til 1990
til þriggja meginviðfangsefna (%)
1985 1986 1987 1988 1989 1990
Aðlögun hefðb. búgreina 61% 66% 70% 45% 35%
Eflingatv. ísveitum .... 38% 10% 17% 12% 39% 24%
Alrnenn viðfangsefni . . . 62% 29% 17% 18% 16% 41%
6. taf la. Yfirlit um stuðning Framlelðnisjóðs við loðdýrarœkt
árin 1985-1990 íþús.kr.
1985 1986 1987 1988 1989 1990 Alls
Búháttaframlög 18600 15000 42300 26200 16500 1437 120037
Fóðurstöðvar 11800 19500 13100 5600 6000 1777 57777
Skinnaverkunarstöðvar . 1800 2200 1700 1400 2400 985 10485
Ranns. ogleiðbeining . . . 4000 4100 10500 10500 9600 1548 40248
Innfl. ogsæðingar 1200 500 2500 3800 5000 2650 15650
Lán til loðdýraræktar . . . 700 500 7500 46900 55600
Frantl. skipti/rekst 68500 29525 98025
Lánv/fjárhagsl.eskl 18000 12800 30800
Fóðurniðurgreiðsla .... 37340 37340
Framkvæmdskuldbreyt. . 3533 3533
Lán vegna afurðalánavaxta 10900 10900
Samtals: 38100 41800 77600 94400126000102495 480395
Á verðlagi í ársloki 1990: 110109 98875 149943 157261 172925 106226 795339
er árlega varið miklum fjármun-
um.
Framlög til Markaðsnefndar
landbúnaðarins eru langstærsti
einstaki liðurinn, en fjárveiting til
hennar var kr. 14 milljónir á árinu.
Því fé er varið til almenns kynning-
arstarfs í þágu íslensks landbúnað-
ar og markaðs- og viðhorfskann-
ana, auglýsinga og reksturs nefnd-
arinnar.
Landbúnaðarráðuneytið fékk
10 milljónir króna til söluátaks á
kindakjöti.
Búnaðarfélagi íslands var veitt
ein milljón króna til að kanna
markað fyrir eldisbleikju.
Til Ferðaþjónustu bænda var
veitt 12 milljónum króna í sam-
ræmi við fyrirheit frá árinu áður, til
kynningar og samræmingar á þjón-
ustu ferðaþjónustubænda.
Félag hrossabænda fékk um kr.
2 milljónir sem framlag, auk bak-
ábyrgðar vegna flutnings á hross-
um til útlanda.
Selveiðibændur fengu einnar
milljón króna framlag til vöruþró-
unar og markaðsöflunar fyrir vör-
ur sem unnar eru úr selskinni.
Landssamband kartfölufram-
leiðenda fékk 500 þúsund krónur
til kynningar og markaðsöflunar.
Upplýsingaþjónustu landbúnað-
arins var veitt 500.000 krónu fram-
lag til að greiða kostnað við heim-
sóknir leikskólabarna á bændabýli
og 400.000 krónur til að gera
myndband um landbúnað og land-
nýtingu.
Loðdýrarœkt
Vinna við framkvæmd laga nr. 112/
89 hófst strax um áramótin 1989/
1990 með söfnun og úrvinnslu upp-
lýsinga um fjárhagsstöðu loðdýra-
bænda, í samræmi við ákvæði lag-
anna.
Alls bárust 182 umsóknir um
skuldbreytingar og auk þess 21
umsókn um greiðslu jöfnunar-
gjalds eingöngu.
Af hálfu sjóðsins annaðist Jón
G. Guðbjörnsson úrvinnsluna og
tillögugerðina, en auk hans var
Magnús B. Jónsson fenginn til
verksins. Lauk þeirri vinnu fyrri
hluta febrúar og var reglugerð nr.
84/1990 um þessar skuldbreytingar
undirrituð 22. febrúar af landbún-
aðarráðherra.
Þann 26. febrúar voru frumtil-
lögur sendar til 141 bónda, til að
þeir gætu kynnt þær lánadrottnum
og leitað samþykkis þeirra.
Níu umsóknum var hafnað.
Staða um þrjátíu loðdýrabænda
var það erfið að talin var þörf á
sérstakri ráðgjöf og hlutuðust
Stéttarsamband bænda og land-
búnaðarráðuneytið til um að Árni
Vilhjálmsson lögfræðingur og
Guðjón Eyjólfsson endurskoðandi
væru fengnir til að aðstoða þá við
að ráða fram úr sínum málum.
í árslok 1990 var búið að af-
greiða flest mál sem borist höfðu
frá bændum. Örfá mál eru til með-
ferðar hjá Árna Villhjálmssyni og
Guðjóni Eyjólfssyni. Veruleg
vandkvæði eru á að koma skuld-
breytingu við í örfáum tilvikum,
oftast vegna eignaleysis.
Samhliða þessum skuldbreyt-
ingum hefur verih unnið að af-
greiðslu svonefndra hagræðingar-
lána (skv. samþ. um 60 m. kr. lán
f.f.á.).
Er búið að afgreiða rúman helm-
ing þeirrar upphæðar
í apríl voru samþykktar eftir-
taldar stuðningsaðgerðir við loð-
dýraræktina, að tillögu landbúnað-
arráðuneytisins:
1) Framlag, 17 milljónir króna,
til greiðslu jöfnunargjalds á fóður,
til viðbótar 20 milljónun króna
(samþ. í des. ’89) eða samtals 37
milljónir króna, enda leggi ríkis-
sjóður fram jafn háa upphæð.
Þar með voru tryggðir fjármunir
alls 74 milljónir króna, sem dugðu
til að greiða 7,19 kr/kg fóðurs til
jafnaðar á árinu. Framleiðnisjóður
annast þessar greiðslur.
2) Samþykkt var að greiða vexti
af afurðalánum vegna óseldra
loðskinna (eftir marsuppboð) til
Frh. á bls. 818.