Freyr

Árgangur

Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 27

Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 27
20.’91 FREYR 815 Námskeið við Bœndaskólann á Hvanneyri Eftir Runólf Sigursveinsson Eitt af hlutverkum Bœndaskólans á Hvanneyrí er að sinna símenntun og endurmenntun starfsmanna ílandbúnaðinum. Undanfarin ár hefur verið lögð vaxandi áhersla á þennan þátt ístarfi skólans, fyrst og fremst með skipulagningu stuttra námskeiða sem einkum eru œtluð fólki í dreifbýli. Námskeiðin njóta fjárhagslegs stuðnings Framleiðni- sjóðs landbúnaðarins og hefur sjóðurinn tekið þátt í dvalar- og ferðakostnaði þátttakenda. Tilgangur þessa stuðnings er að auðvelda fólki þátttöku í nám- skeiðunum og jafnframt að hvetja til aukinnar starfs- I menntunar í atvinnugreininni. Áhugi fólks á þessu formi af starfsmenntun er mikill og á síðasta skólaári sóttu tæplega 600 manns nám- skeið á Hvanneyri. Mörg þessara námskeiða eru skipulögð í samvinnu við aðrar stofnanir landbúnað- arins eins og fram kemur hér á eftir. Á þessu skólaári eru fyrirhuguð allmörg námskeið á Hvanneyri líkt og undanfarin ár. Hér á eftir fylgir stutt kynning á námskeiðum sem eru í boði frá október til janúar 1992. Jafnframt er hafinn undirbúningur að námskeiðum á vormisseri 1992 og má þar nefna námskeið í skattskilum, bútækni og heyverkun. Kostnaður þátttakenda fyrir þriggja daga námskeið er áætlaður um 4000 krónur. Skráning á öll námskeiðin fer fram á skrifstofu Bændaskólans á Hvanneyri í síma 93-70000 og þar eru veittar allar nánari upplýsingar um námskeiðin. Þátttöku þarfað tilkynna í síðasta lagi þremur dögum áður en námskeiðið hefst. Dagsetning námskeiða Október Bókband..................... 23.-29. Útskurður ............................. 23.-31. Lífdýraflokkun á ref.......... 31. Nóvember Nautgriparækt-beiðslisgreining. ... 5. Tóvinna...................... 6.-8. Framleiðslustjórn á kúabúi.... 11. Lífdýraflokkun á mink......... 12. Sauðfjárrækt-rúningur........ 13.-15. Hrossarækt-fóðrunoghirðing .... 18.-19. Búreikningar.......................... 21.-22. Búsmíði............................... 25.-27. Stofnunogreksturfyrirtækis............ 27.-29. Janúar Kanínurækt-úrvinnslaáfiðu........ 13.-18. Kanínurækt-skinnaverkun............... 13.-18. Tölvunotkunl.......................... 29.-31. Námskeið í október BÓKBAND Tími: 23.-29. október Umsjónarmaður: Jón Friðbjörnsson Efnisþœttir: Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað þeim sem vilja kynna sér undirstöðuþætti í bókbandi. Kennslan er að mestu leyti verkleg. Kennt verður í þrjár klukku- stundir á hverjum degi. Þátttakendum á bókbands- námskeiðinu gefst tækifæri til að taka þátt í útskurðar- námskeiði samhliða bókbandinu. ÚTSKURÐUR Tími: 23.-31. október Umsjónarmaður: Halldór Sigurðsson Efnisþættir: Fjallað um undirstöðuþætti í útskurði í tré og notkun handverkfæra á tré. Kennslan er að mestu verkleg. Námskeiðið nær yfir átta kennsludaga og kennt verður í þrjár klukkustundir á dag. Þátttakend- ur á þessu námskeiði geta einnig tekið þátt í námskeiði í bókbandi samhliða útskurðarnámskeiðinu. LÍFDÝRAFLOKKUN Á REF Tími: 31. október Umsjónarmaður: Bjarni Stefánsson Efnisþættir: Námskeiðið er ætlað bændum sem hafa einhverja

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.