Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 28
816 FREYR
20.'91
reynslu af lífdýraflokkun. Þátttakendur fá þjálfun í að
meta lifandi dýr og fjallað er um þætti sem áhrif hafa á
val lífdýra. Verkleg og bókleg kennsla.
Námskeið í nóvember
NAUTGRIPARÆKT
- BEIÐSLISGREINING -
Tími: 5. nóvember
Umsjónarmaður: Runólfur Sigursveinsson
Efnisþcettir:
Fjallað um ýmsa þætti sem hafa áhrif á kynstarfsemi
kúa. Skoðuð liffæri úr kúm og sýnd notkun á efnum til
hormónamælinga og viðnámsmælir til að greina
beiðsli. Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Porsteinn
Ólafsson dýralæknir.
TÓVINNA
Tími: 6.-8. nóvember
Umsjónarmaður: Jóhanna Pálmadóttir
Efnisþættir:
Markmið námskeiðsins er að leiðbeina þátttakend-
um um nýtingu íslensku ullarinnar til bandgerðar.
Kennt verður að taka ofan af, kemba, spinna á
halasnældu og rokk og loks að tvinna band. Nám-
skeiðið er skipulagt af Bændaskólanum á Hvanneyri
og Búnaðarsamtökum Vesturlands.
FRAMLEIÐSLUSTJÓRN
ÁKÚABÚI
Tími: 11. nóvember
Umsjónarmaður: Runólfur Sigursveinsson
Efnisþœttir:
Þetta námskeið er liður í tilrauna- og þróunarverk-
efni sem ætlað er kúabændum. Tilgangur þess er að
leita hagkvæmustu kosta við fóðuröflun á kúabúi og
fóðrun mjólkurkúa. Verkefnið hófst haustið 1990 og
lýkur með þessu námskeiði. Verkefnið er unnið í
samvinnu Búnaðarfélags Islands, Bændaskólans á
Hvanneyri, Hagþjónustu landbúnaðarins, Landssam-
bands kúabænda.auk búnaðarsambanda á Vestur-
landi.
LÍFDÝRAFLOKKUN Á MINK
Tími: 12. nóvember
Umsjónarmaður: Bjarni Stefánsson
Efnisþœttir:
Námskeiðið er ætlað bændum með einhverja
reynslu af flokkun. Kennslan er verkleg að mestu leyti
og þátttakendur fá þjálfun í að meta lifandi dýr. Auk
þess er fjallað um þætti sem hafa áhrif á val lífdýra.
SAUÐFJÁRRÆKT - RÚNINGUR
Tími: 13.-15. nóvember
Umsjónarmaður: Guðmundur Hallgrímsson
Efnisþættir:
Námskeiðið er ætlað fólki með litla eða enga
reynslu af vélrúningi. Auk verklegrar kennslu í rún-
ingi verður fjallað um meðferð og flokkun ullar. Auk
þess verður fjallað um áhrif húsvistar á ull.
HROSSARÆKT
- FÓÐRUN OG HIRÐING -
Tími: 18.-19. nóvember
Umsjónarmaður: Ingimar Sveinsson
Efnisþættir:
Fjallað er um uppeldi og þroska folalda og tryppa.
Umfjöllun um meltingu hrossa, fóðrun og helstu
fóðurtegundir. Gerð grein fyrir ýmsum þáttum sem
varða hirðingu hrossa.m.a. hófhirðu,og fjallað um
sjúkdóma. Loks verður fjallað um ýmis atriði varð-
andi frjósemi hrossa.
BÚREIKNINGAR
Tími: 21.-22. nóvember
Umsjónarmaður: Gunnar Kristjánsson
Hagþjónustu landbúnaðarins
Efnisþættir:
Námskeiðið er einkum ætlað þeim bændum sem
áhuga hafa á að færa sitt eigið bókhald og nota til þess
forritin Búbót og/'eða Bóndann. Fjallað er um grunn-
atriði bókhalds, uppbyggingu forritanna og verklegar
æfingar á tölvu. Námskeiðið er skipulagt í samvinnu
Bændaskólans á Hvanneyri og Hagþjónustu landbún-
aðarins.
BÚSMÍÐI
Tími: 25.-27. nóvember
Umsjónarmaður: Hilmar Hálfdánsson
Efnisþættir:
Námskeiðið er framhald af námskeiði í málmsuðu.
Lögð verður áhersla á „basískan“ suðuvír (allar suðu-
stöður), gasbrennsli og smíðar. Kennslan fer að mestu
fram á kennsluverkstæði skólans.
STOFNUN OG REKSTUR FYRIRTÆKIS
Tími: 27.-29. nóvember
Umsjónarmaður: Jón Pálsson
Atvinnuráðgjöf Vesturlands
Efnisþættir:
Námskeiðið er ætlað fólki í dreifbýli sem hug hefur
á stofnun fyrirtækis. Fjallað verður um helstu atriði
varðandi fjármögnun, skipulagningu og áætlanagerð.