Freyr

Árgangur

Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 29

Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 29
20.'91 FREYR 817 Einnig verður stuttlega fjallað um helstu þætti í rekstri svo sem fjármál, markaðs- og framleiðslumál. Nám- skeiðið er skipulagt af Bændaskólanum á Hvanneyri og Atvinnuráðgjöf Vesturlands Námskeið í janúar KANÍNURÆKT - ÚRVINNSLAÁ KANÍNUFIÐU - Tími: 13.-18. janúar Umsjónarmaður: Ingimar Sveinsson Efnisþættir: Fjallað verður um ýmsa þætti sem tengjast úr- vinnslu á kanínufiðu í heimilisiðnað. Leiðbeinandi verður frá Noregi en námskeiðið er skipulagt í sam- vinnu Búnaðarfélags íslands og Bændaskólans á Hvanneyri. Samhliða þessu námskeiði verður nám- skeið um skinnaverkun og þátttakendum á úrvinnslu- námskeiðinu gefst kostur á að taka þátt í skinnaverk- uninni samhliða úrvinnslu á fiðunni. KANÍNURÆKT - SKINNAVERKUN - Tími: 13.-18. janúar Umsjónarmaður: Sverrir H. Júlíusson Efnisþættir: Fjallað um ýmis grunnatriði við verkun skinna. Auk þess kennd handbrögð við fláningu og frágang skinn- anna. Leiðbeinandi kemur frá Noregi en námskeiðið er skipulagt af Búnaðarfélagi íslands og Bændaskól- anum á Hvanneyri. Þátttakendur geta einnig, sam- hliða skinnaverkuninni, tekið þátt í úrvinnslunám- skeiðinu. TÖLVUNOTKUN I. Tími: 29.-31. janúar Umsjónarmaður: Bjarni Stefánsson Efnisþættir: Námskeiðið er ætlað byrjendum. Farið í helstu grundvallaratriði tölvunotkunar. Helstu efnisþættir eru stýrikerfi, ritvinnsla og töflureiknir. Kennslan er að mestu verklegar æfingar á tölvu undir leiðsögn kennara. Námskeið febrúar til júní 1992 - DÆMI UM VIÐFANGSEFNI - Skattskil: Námskeið í skattskilum þar sem farið er yfir landbúnaðarframtal og persónuframtal auk laga um tekju- og eignaskatt. Skógrækt: Námskeið í skógrækt þar sem m.a. verður fjallað um skógræktarskil- yrði og helstu trjátegundir. Skjólbelti: I byrjun júní verður boðið upp á tveggja daga námskeið um skjól- belti þar sem m.a. verða kynntar helstu tegundir trjágróðurs sem koma til greina í skjólbelti við ís- lenskar aðstæður. Matjurtarækt: Dagsnámskeið í matjurtarækt verður næsta vor þar sem m.a. verða kynntar nýjungar úr til- raunastarfinu á Hvanneyri á því sviði. Rúllubaggar: Undanfarin ár hafa margir bændur komið á námskeið um verkun vot- heys í rúlluböggum sem haldin hafa verið í samvinnu skólans og Bútæknideildar Rannsóknastofn- unar landbúnaðarins. Ætlunin er að bjóða upp á svipuð námskeið næsta vor en jafnframt er farið að huga framhaldsnámskeiði fyrir þá sem þegar hafa lokið grunnnám- skeiði. Þurrheysgerð: Námskeið um þurrheysgerð er í undirbúningi með aðaláherslu á nýtingu súgþurrkunar en jafnframt kynntar nýjustu athuganir varð- andi tækni við slátt og forþurrkun. Viðhald húsa: í undirbúningi er námskeið um viðhald og viðgerðir húsa í sveitum þar sem m.a. yrði fjallað um ein- stök efni til viðgerða og jafnframt gerð grein fyrir notagildi þeirra. ÖNNUR NÁMSKEIÐ Undanfarin ár hefur Bændaskólinn á Hvanneyri átt samstarf við Umferðarráð og Fræðsluskrifstofu Vest- urlands um námskeið ætluð nemendum í efstu bekkj- um grunnskóla á Vesturlandi. Viðfangsefni nám- skeiðanna eru ýmis atriði sem varða hirðingu og meðferð dráttarvéla, auk þess sem fjallað er vissa þætti umferðarlaga og reglur um búnað dráttarvéla. Síðastliðið skólaár tóku tæplega 100 nemendur þátt í þessum námskeiðum og boðið verður upp á svipuð námskeið vorið 1992. Á undanförnum árum hefur Búvísindadeildin á

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.