Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 32
Nr. 6 - 1991 HYRNA fréttahom 1 U K
Aðalfundur LK í Þelamerkurskóla.
Viðburðaríkt starfsár að baki í starfsemi LK
Þróunarsjóður nautgriparæktar tekinn til starfa, átak hafið í sölunr nautgripakjots og nýr búvörusamningur undirritaður. láium
Þetta eru nokkur þeirra mála sem
hvað hæst hefur borið á síðasta
starfsári LK og sem Guðmundur
Lárusson formaður gerði sérstaklega
að umræðuefni á aðalfundinum. Hann
sagði að sá
rammi sem
nýr búvöru-
samningur
skapaði væri
enn að miklu
leyti óút-
fylltur en nú
væri beðið
álits Sjö-
mannanefndar
sem land-
búnaðarráð-
herra hefur
falið að vinna
að tillögu-
gerð um
hagræðingu í mjólkurframleiðslu,
bæði á framleiðenda- og
úrvinnslustigi. Þó er ljóst að
framleiðsla umfram innan-
landsmarkað verður alveg á ábyrgð
framleiðenda eftir 1992 þótt enn sé
ósamið um hvemig birgðum verður
háttað. Þá lagði Guðmundur mikla
áherslu á að þrátt fyrir það að nýr
búvörusamningur tryggi inn-
flutningsvemd á samningstímanum,
væri nauðsynlegt fyrir landbúnaðinn
að vera vel á verði, það sýndu atburðir
sumarsins og átti þar við deilur um
stöðu viðbits í svokölluðum EES-
viðræðum. Hannkvaðframleiðendur
og forystumenn mjólkuriðnaðarins
verða að líta á samningstímann sem
nokkurs konar aðlögunartímabil.
"Með ákveðinni hagræðingu meðal
framleið-
enda, sem
felst m.a. í
tilfærslu á
fullvirðis-
rétti milli
þ e i r r a ,
m i n n i
s k a 11 a -
álögum á
búgreinina
og ekki síst
allsherjar
endurskipu-
lagningu
iðnaðarins
þar sem
hagkvæmni verður í fyrirrúmi, er
hægt að auka verulega sam-
keppnishæfni mjólkurframleiðslu á
íslandi,” sagði formaðurinn í ræðu
sinni..
Hluti fagmálanefndar í þungum þönkum. Frá vinstri: Jón Gíslason, Oddur Gunnarsson,
Sigurgeir Hreinsson, Gunnar Jónsson, Jón Eiríksson og Bergur Pálsson.
MARKAÐSVIÁ L NAUTGRIPAKJÖTS ÞAl AÐ BÆTA.
í kjölfar viðhorfskönnunarum neyslu fólks á nautgripakjöti tók LK upp samstarf við veitingahúsið Argentínu í Reykjavík og útvarpsstöðina Bylgjuna um kynningu og uppskriftasamkeppni á nauta- kjötsréttum. Þær birtust síðan í tímaritinu Gestgjafanum, auk þess sem sérprentunum var dreift í matvöruverslanir. Fundurinn lagði til að endur- greiðslu sérstaks kjamfóðurgjalds, sem innheimt er vegna nauta- kjötsframleiðslu, verði varið til markaðssetningar á nautgripakjöti. Þá vinnur fæðudeild Rala nú að mjög athyglisverðum rannsóknum, m.a.í samvinnuviðsláturleyfishafa, á ýmsum gæðaþáttum nautgripakjöts sem munu leggja grunn að nauðsynlegum breytingum á kjötmatinu. Aðalfundurinn samþykkti að koma á fót sérstakri kjötnefnd innan LK sem á að fylgjast með þróun framleiðslu og markaðar og undirbúa tillögur að nýjum matsreglum fyrir nautgripakjöt.
LK • LANDSAMBAND KÚABÆNDA • UÞL • UPPLÝSINGAÞJÓNUSTA LANDBÚNAÐARINS