Freyr

Árgangur

Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 33

Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 33
-N L K fréttahom HYRNA Nr.6-1991 B J ARGRÁÐAS JÓÐIBER AÐ BÚGREINAS KIPT A. A árinu fjallaði stjóm um Bjargráðasjóð og taldi að búgreinaskipta beri sjóðnum þannig að hver búgrein fái úr sjóðnum í samræmi við það sem hún greiðir í hann. Þá lagði stjómin til að starfsreglur verði settar í samráði við LK og að heimilt verði að verja fjármunum sjóðsins til forvama vegna búfjársjúkdóma, einkum júgurbólgu. HÆKKA l>ARF LANSHLHTFALL L'T AIIAUGHUS. Þá fjallaði stjómin um lánareglur Stofnlánadeildar landbúnaðarins og lagði áherslu á að lánshlutfall á byggingar ogbúnaðtil nautgriparæktar verði hækkað þar eð framlög skila sér seintogilla. Lagt var til að hámarksstærð vegna lána væri miðuð við 36 mjólkurkýr fyrir hvem aðila að búi og samsvarandi ef um kjötframleiðslu væri að ræða. Til að greiða fyrir ætdiðaskiptum þyrfti að hækka lán til bústofns- og jarðakaupa. Loks taldi stjórnin rétt að líta sérstaklega gagnrýnum augum umsóknir um lán út á fjósbyggingar þar sem mjólkurflutningar eru mjög erfiðir og kostnaðarsamir. Þær hugmyndir sem kynntar vom fyrir ári um framlög til þróunarverkefna og rannsókna í nautgriparækt hafa í einu og öllu orðið að vemleika. Áður en stjóm LK tekur afstöðu til umsókna er umsagnar Fagráðs í nautgriparækt leitað. í ágústlok hafa verið afgreiddar 9 umsóknir, samtals að upphæð 12.340.000 kr. aðalfundinum voru samþykktar 13 tillögur. Áður hcfur verið gerð grein fyrir meginefni tillögu um hagræðingu í mjólkur- iðnaði og að framan er getið um tillögur varðandi nautgripakjöt. Fundurinn taldi eðlilegt að nú, þegar búgreinafélög hafa fengið fastan tekjustofn, verði gjald til Framleiðsluráðs lækkað sem svarar þeim hluta sem áður var varið til búgreinafélaga. Þá taldi fundurinn brýnt að Hagþjónusta landbún- aðarins afli gagna um vinnuþörf á kúabúum og að við verðlagningu sé á hverjum úma stuðst við sem réttastar stærðir og magntölur í verðlags- grundvelli, jafnframt því sem lögð var áhersla á að staðið væri við fundurinn heppilegast að greiða úl tölulega hátt verð (65 - 70% af gmndvallarverði) fyrir þann rétt sem ónýttur verður í lok verðlagsársins, en hafnaði þeirri hugmynd að þvinga niður fullvirðisrétt allra. Fundurinn taldi brýnt að við endurskoðun á gjaldskrá dýralækna verði kveðið á um hlutlausan aðila sem úrskurði um vafaatriði sem upp kunna að koma á túlkun hennar. Jafnframt verði leitað leiðatil að einfalda uppsetningu verðskrár og aðgerðaflokka, þannig að bændur geú borið saman reikninga og gjaldskrá og séð samræmi þar á milli. Þá var því beint til stjómar að leita eftir endurskoðun á starfssviði og ráðningarkjörum frjótækna en fram kom áhugi fundarmanna á að frjótæknar annist fangprófanir. Fundarmenn heimsóttu tilraunastöðina á Möðruvöllum og mjólkursamlag KEA. Hér spjallar Stefán Magnússon bústjóri (í miðju) við Guðmund Þorsteinsson og Jón Eiríksson._______________________________________ lögbundin ákvæði um launakjör bænda. Varðandi hugmyndir um greiðslur fyrir ónýttan rétt taldi LK • LANDSAMBAND KÚABÆNDA • UÞL • UPPLÝSINGAÞJÓNUSTA LANDBÚNAÐARINS

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.