Freyr

Árgangur

Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 35

Freyr - 15.10.1991, Blaðsíða 35
20.'91 FREYR 823 um breytingar á reglugerð nr. 414/ 1991, um aðlögun fullvirðisréttar til framleiðslu sauðfjárafurða að innanlandsmarkaði. Fyrsta mgr. 11. gr. reglugerðar- innar orðist svo: „ Til lækkunar á niðurfœrslu full- virðisréttar á lögbýlum á hverju búmarkssvæði kemur innlagður fullvirðisréttur sbr. 22. gr. og full- virðisréttur nýtanlegur til fram- leiðslu sem seldur hefur verið ríkis- sjóði skv. II. kafla (búvörusamn- ingsins nýja - innsk). Sala til ríkis- sjóðs á fullvirðisrétti sem er ífram- leiðslu á lögbýlum umfram mark- miðsbr. 9. oglO. gr. kemurekki til lækkunar á fyrri niðurfœrslu ann- arra búmarkssvœða. Ákvœði þess- arar mgr. ná ekki til fullvirðisréttar utan lögbýla. “ Samkvæmt þessari reglugerð verður fyrri niðurfærslan, eins og fyrri hluti aðlögunar fullvirðisrétt- ar til framleiðslu sauðfjárafurða að innanlandsmarkaði er gjarnan nefnd, gerð upp innan hvers bú- markssvæðis. Sum búmarkssvæði haf selt meira af fullvirðisrétti en þurfti til að forðast flata niður- færslu. Á öðrum hefur hins vegar ekki selst nóg. Par sem búvörusamnigurinn frá 11. mars sl. kvað ekki á um upp- gjör niðurfærslunnar var því álita- mál hvort gera ætti sölu fullvirðis- réttarins að einhverju leyti upp yfir landið í heild eða innan hvers bú- markssvæðis. í fyrri reglugerðinni var kveðið á um að gera ætti upp fyrri niðurfærsluna yfir landið í heils. Pað hefði þýtt í reynd að þau búmarkssvæði sem áttu á hættu flatan niðurskurð fengju umfram- sölu á fullvirðisrétti „lánaða" frá þeim svæðum þar sem salan hafði gengið vel og dæmið gert upp í heild sinni að síðari niðurfærslu lokinni haustið 1992. Flata niður- skurðinum hefði m.ö.o. verið frestað fram á haustið 1992. Þá er kveðið á um að reglugerð- in nái ekki til fullvirðisréttar utan lögbýla, sem er einnig grundvallar- breyting frá fyrri reglugerðinni. Það þýðir að sala fullvirðisréttar hjá svonefndum „þéttbýlisbænd- um“ verður ekki gerð upp í haust heldur næsta haust. Þar sem þessi „þéttbýlisréttur" verður gerður upp á landsvísu hefði hann nýst þeim búmarkssvæðum sem hafa enn ekki náð tilskilinni sölu við uppgjörið á fyrri niðurfærslunni og verða því beitt flötum niðurskurði. En svo mun ekki verða fyrr en næsta haust þegar síðari niður- færslan verður gerð upp. Hagstœð kjör til bœnda vegna heimtekins kjöts. Samþykkt var eftirfarandi til- laga frá Arnóri Karlssyni: „Framleiðsluráð landbúnaðarins samþykkir fyrir sitt leyti, þrátt fyrir ákvæði í 7. gr. samningsins milli Framleiðsluráðs landbúnaðarins og Landssamtaka sláturleyfishafa að heimila afurðarstöðvum að bjóða bændum hagstæðari kjör vegna heimtekins kjöts en um get- ur í fyrrnefndri grein.“ Á fundi framkvœmdanefndar 14. okt. gerðist m.a. þetta: Ráðstöfun á sérstöku fóðurgjaldi vegna sauðfjárrœktar. Kynnt var eftirfarandi bréf frá landbúnaðarráðuneytinu frá 30. september sl. „Ráðuneytinu hefur borist til- laga frá Stéttasambandi bænda um ráðstöfun á sérstöku fóðurgjaldi, sem innheimt er vegna sauðfjár- ræktar og kemur til endurgreiðslu sbr. ákvæði 9. gr. reglugerðar nr. 222/1987 um ráðstöfun á sérstöku fóðurgjaldi vegna afurða naut- gripa, sauðfjár og hrossa. Tillagan felur í sér að kjarnfóðurgjald vegna sauðfjárframleiðslu renni áfram til verkefna á vegum Samstarfshóps um sölu á lambakjöti. Með tilvísun til áðurnefndar reglugerðar er þessi ráðstöfun hér með heimiluð og Framleiðsluráði falið að annast afgreiðslu málsins.“ Jöfnunargjald vegna útfluttra hrossaafurða. Kynnt var eftirfarandi bréf frá landbúnaðarráðuneytinu frá 9. október sl. „Vísað er til bréfs Félags hrossa- bænda, dags. 30. ágúst s.l., þar sem óskað er eftir því að leyst verði verðvöntun vegna útfluttra afurða hrossa árið 1990/91. Ráðuneytið hefur ekki möguleika til þess að leysa þessa vöntun með greiðslu útflutningsbóta og hefur ákveðið, skv. tillögu Félags hrossabænda í áðurnefndu bréfi til ráðuneytisins, að heimila Framleiðsluráði að ann- ast innheimtu á jöfnunargjöldum af sláturleyfishöfum vegna útflutn- ingsins. Um er að ræða 2 000 þús- undir króna sem þarf að jafna út sbr. bréf Félags hrossabænda.“ Yale handtalíur Níðsterkar, léttar og litlar Söluaðilar: kaupfélögin Yale - gæði - ending Heildsöludreifing Jóhann Ólafsson & Co 43 Sundaborg 13-104 Reykjavik - Sími 688 !

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.