Freyr

Árgangur

Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 4

Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 4
GÓÐAN DAG Það er ekkert slen í kálfunum, sem fá kálfafóðrið frá okkur. Ef þú vilt tryggja góða fóðrun ungkálfa, þá gefur þú þeim kálfafóður og kraftfóður frá 4ra daga aldri og fram til 12 vikna aldurs. Kálfafóðrið er undanrennu- mjöl, blandað tólg. Eitt kg af kálfafóðri á að hræra út í 8 lítrum af vatni. Hæfilegt er að gefa kálfum 2,0 til 4,5 lítra af blöndunni á dag. Það fer eftir aldri og öðru fóðri. I Heildsala og smásala Osta- og smjörsalan Bitruhálsi 2, sími 91-82511 Klaufheilsa í Svíþjóð er bannað að nota frá árinu 1994 rafbúnað sem kemur í veg fyrir að kýrnar skíti í básinn. Nú eru margir sem telja að það sé að sumu leyti meiri skepnuníðsla að nota ekki rafstrenginn heldur en að nota hann og að þetta hafi verið staðfest með tilraun í Dals- land. Frá þessu er sagt í norska tímaritinu Gárdbrukeren. í fjósi einu var settur rafstrengur hjá helmingi kúnna en hinum ekki. í ljós kom að klaufir voru heil- brigðar hjá þeim kúm þar sem raf- strengur var, en hinar þjáðust af klaufroti. Eftir að sá helmingur kúnna fékk rafstreng við básinn, batnaði klaufheilsa þeirra veru- lega. Þetta stafaði af því að kýr án rafstrengs stóðu alltaf í mykju og voru blautar á klaufunum. Þar með áttu sýklar auðveldari aðgang að þeim. BÆNDUR K.R. afrúllarinn fyrirliggjandi Einföld og ódýr lausn við gjafir úr rúlluböggum. Leitið upplýsinga. KAUPFÉLAG RANGÆINGA Vélasala, sími 98-78225

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.