Freyr

Árgangur

Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 10

Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 10
878 FREYR 22.’91 Tœkjakostur við kortagerð. Lengst til vinstri er hnitaborð, þá tölva með kort á skjánum og teikniprentari, plottari, lengst til hœgri. búnaði. Fyrstu kortin sem teiknuð voru voru af túnum í Hrafnagils- hreppi og Glæsibæjarhreppi í Eyja- firði og Lýtingsstaðahreppi, Seylu- hreppi og Staðarhreppi í Skaga- firði. Er þessum hreppum þá lokið? Já, á þeim jörðum þar sem bænd- urnir vildu fá kort. Pað voru nær allir bændur í hreppunum hér í Eyjafirði en þátttaka var ekki eins almenn í hreppunum í Skagafirði. En það má geta þess hér að þessir hreppar urðu fyrir valinu vegna þess að fyrir láu niðurstöður jarð- vegsefnagreininga frá árinu 1990. Þessar niðurstöður ásamt upplýs- ingum um túnstærðir af túnkortun- um voru nýttar til að tölvuvinna áburðaráætlanir bæði með og án búfjáráburðar fyrir þessa bændur síðastliðið haust Þurfa bœndur að greiða fyrir þessa þjónusfu? Já, efnagreiningaþjónusta RN hef- ur alla tíð verið seld og fyrir hvert jarðvegssýni eru í dag greiddar kr. 920 án vsk og fyrir túnkortin er greitt visst á spildu eða kr. 200 og kr. 130 á hvern hektara upp að 50 ha stærð, þ.e. fyrir teiknivinnuna og frágang á korti. Þið eigið þá mikið verk fyrir höndum í túnkortagerð á svœði RN á nœstu árum? Já, ef áhugi bænda er á þessari þjónustu. Nú er þetta komið í gang í Eyjafirði og Skagafirði og einnig lítillega í Norður-Þingeyjarsýslu. Það er búið að kaupa loftmyndir af flestum jörðum í Eyjafirði og þetta er komið vel af stað í Skagafirði og þar munu menn halda áfram. IV,- Húnavatnssýslu er töluverður áhugi og ég reikna með að þar verði hægt að byrja á þessu fljót- lega. Það sem stoppaði þá af var að ekki voru til nýjar loftmyndir af jörðunum, en vonandi rætist úr því. Ég reikna svo með að fram- hald verði á þessu í N.-Þingeyjar- sýslu, en í S.-Þingeyjarsýslu og A,- Húnavatnssýslu eru menn ekki byrjaðir ennþá, enda hefur þetta verið fremur lítið kynnt fyrir bænd- um enn sem komið er, nema þá fyrst nú. Stendur gjaldtakan undir þessu? Já, það er miðað við að gjaldtaka greiði útlagðan kostnað við þessa þjónustu og ég lít á þetta sem hvern annan rekstur sem verður að standa undir sér. Gefur þetta ekki kost á ýmissi annarri þjónustu? Jú, það hafa fleiri verkefni verið unnin með þessu, svo sem afstöðu- myndir í sambandi við bygginga- framkvæmdir. (Að vísu fylgir með túnkortum afstöðumynd af bygg- ingum og vegum). Ef menn eru að leggja út í einhverjar framkvæmdir þá geta menn látið okkur vinna kort fyrir sig. Þetta gæti t.d. verið í sambandi við skipulagningu á sum- arhúsasvæðum, skógrækt og fleira. Annað verkefni sem við unnum sl. vor og sumar var mæling og flokkun á landi eftir gróðurfari vegna beitarálags. Það var unnið í samráði við Landgræðslu ríkisins, fyrir nokkrar jarðir í Skagafirði. Þar var allt land viðkomandi jarða mælt og flokkað m.t.t. gróðurfars.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.