Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 12
880 FREYR
22.’91
við slökkvistarf. Jafnframt kæmi
fram úr hvaða efni byggingar eru.
Við útköll hefði Slökkviliðið
möppu með þessum upplýsingum
með sér.
Síðastliðinn vetur teiknuðum
við nokkuð af eldri byggingum í
sambandi við endurmat vegna fast-
eignamats. Petta er gert eftir mæl-
ingum og er verkefni sem hefur
verið hjá byggingafulltrúunum.
Byggingafulltrúinn í Eyjafirði er
með skrifstofu hér í Búgarði og í
staðinn fyrir að handteikna þetta
þá gerðum við prufu með að nota
tölvuna við þetta og það gekk
þokkalega vel.
Að lokum má nefna að rætt hef-
ur verið um að kortleggja hinar
ýmsum lagnir á sveitabýlum, svo
sem rafmagnslagnir, síma, frá-
rennsli og neysluvatn. Þegar ábú-
endaskipti verða eða aðrar breyt-
ingar á búsetu þá vill gleymast hvar
í jörðu þessar lagnir eru, sem getur
valdið vandræðum vegna ýmissa
framkvæmda síðar meir.
Getur hvaða bóndi sem er á
starfssvœði RN snúið sér til
ykkar um verkefni eða viljið þið
ganga að þessu eftir skipulagi?
Það auðvitað vinnst betur ef unnið
er eftir skipulagi, en það getur hver
sem er leitað til okkar. Ef það er
eitthvert verkefni sem er brýnt, þá
er tekið tillit til þess. Nú í sam-
bandi við túnkortin er ekki nauð-
synlegt að tekin séu jarðvegssýni
um leið, þó að þetta nýtist mjög vel
saman við áburðarleiðbeiningar.
Geta ekki búnaðarsamböndin
létt undir með þessu starfi hvert
á sínu svœði?
Jú, vissulega, en það er ekki alveg
ljóst nú hvernig staðið verður að
þessu á hverju búnaðarsambands-
svæði. Það er t.d. spurning hvort
búnaðarsamböndin eigi að taka á
sig kostnað við loftmyndirnar eða
viðkomandi bóndi. Ég teldi æski-
legast að búnaðarsamböndin ættu
loftmyndirnar og að þau sæju um
undirbúningsvinnuna heima fyrir,
þ.e. að merkja inn á myndirnar í
samráði við bændur, en við hér
sæjum svo um teiknivinnuna.
Þannig hefur það verið í Skagafirð-
inum og gengið mjög vel.
Frh. á bls. 902.
Fréttlr frá „Bœndaferðum"
Bœndaferðir sumarið 1992
Þegar hefur verið ákveðið að
efna til tveggja bændaferða til
útlanda næsta sumar.
Bœndaferð til Evrópu.
Lagt verður af stað í þessa ferð
um miðjan júní. Flogið verður til
Munchen eða Basel með leigu-
flugi. Þessi ferð mun standa í
tvær vikur. Fyrri vikuna verður
dvalið á sama hótelinu í Suður-
Tyrol, en það svæði tilheyrir Ital-
íu. Farnar verða skoðunarferðir
frá gististað, m.a. til Feneyja og
Gardavatns.
Næsti áfangastaður verður lít-
ið þorp í þýsku Ölpunum sem
heitir Rettenberg. Þar verður
gist fjórar nætur á tveim litlum
hótelum og á einkaheimilum.
Þaðan verða einnig farnar skoð-
unarferðir til fallegra staða í ná-
grenni Rettenbergs.
Síðasti gististaður verður í
Bæjarlandi en þar verður gist í
þrjár nætur.
Að þessu sinni er gert ráð fyir
96 þátttakendum. Þeir verða í
tveim 48 manna hópferðabflum.
Ferðin verður seld með öllum
skoðunarferðum og hálfu fæði í
11 daga. Síðustu þrjá dagana
verður eingöngu gisting innifal-
in. Gert er ráð fyrir að verð á
þessari 2ja vikna ferð verði um
kr. 63 000 á mann, miðað við
gistingu í 2ja manna herbergi og
þ.e.a.s. ef flugfargjald verður
ekki hærra en síðastliðið sumar.
Þeir sem hafa áhuga á þátttöku
í þessari ferð ættu að panta sem
allra fyrst hjá Agnari eða Hall-
dóru í síma 91-19200.
Bœndaferð til Kanada og
Bandaríkjanna.
Farið verður eins og undanfarin
sumur 3ja vikna ferð til Vestur-
heims. Að þessu sinni verður far-
ið um nýjar slóðir. Gert er ráð
fyrir að fara með leiguflugi til
Winnipeg. Þaðan verður haldið
til Ontario. Fyrsti áfangastaður
verður Thunder Bay við Super-
ior vatn. Þaðan verður ekið með-
fram vatninu til Sault Ste. Marie
og gist þar í þrjár nætur. Næsti
áfangastaður verður bærinn
Rhinelander í Wisconsin. Þaðan
verður svo ekið til Minneapolis í
Minnesota og gist þar í þrjár næt-
ur. Þá verður næst gerður stuttur
stans í Fargo í Norður Dakota og
gist þar eina nótt. Þaðan verður
haldið til Cavalier í sama fylki og
gist þar í 2 nætur. Hringferðin
endar svo í Winnipeg, en þar
verður gist 4 nætur.
Farnar verða margar skoðun-
arferðir út frá gististöðum, Vest-
ur-íslendingar verða heimsóttir
og ýmislegt gert sér til gamans.
Þegar þetta er skrifað er óljóst
með brottfarardag og kostnað en
það mun allt skýrast á næstu vik-
um. Þó má fullyrða að þessi ferð
verður mun ódýrari en aðrar
sambærilegar ferðir.
(Fréttatilkynning)