Freyr

Árgangur

Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 14

Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 14
882 FREYR 22.'91 Útihús á jörð í einkaeign Lettlandi. vegg þar sem vopnaðir hermann stóðu vakt. Það voru einnig götu- vígi í Tallin, höfðuborg Eistlands, enþ>ar ríkti ekki eins mikil spenna. I öllum löndunum er unnið að því að innleiða markaðshagstjórn og það er tekist á um það hversu hratt skuli þar gengið að verki. I Eistlandi munu ýmsar þjónustu- greinar, (kaffihús og veitingastaðir o.fl.) taka upp einkarekstur á árinu. í Lettlandi verður þjónustustarf- semi einnig einkavædd fyrst ásamt landbúnaði en iðnaður síðast. Öll löndin þrjú stefna að því að taka upp eigin gjaldmiðil, bæði til að undirstrika sjálfstæði sitt og kom- ast út úr því öngþveiti sem rúblan er í. Öllum er ljóst að skiptin yfir í markaðshagfræði verður erfið, ekki minnst hvað varðar atvinnu- leysi. í Lettlandi er nokkurt at- vinnuleysi en í Eistlandi er það lítið. Landbúnaður í Sovétríkjunum. Landbúnaður í Sovétríkjunum ein- kennist um þessar mundir af því að efnahagskerfið er í kreppu. Fram- leiðsla matvara hefur dregist sam- an. Ástæðan er sú að þær fram- leiðsluhvetjandi aðferðir sem áður var beitt eru ekki lengur fyrir hendi, án þess að nýjar hafi komið í staðinn. Landbúnaðurinn er yfir- fullur af peningum sem eru einskis virði. Ástandið er alvarlegt þar eð jafnvel lítill samdráttur í fram- leiðslu veldur vandamálum. Endurreisn landbúnaðarins stríðir í ströngu þar sem löggjöf um eignarrétt á jarðnæði og skyld mál tekur of hægum breytingum. Hug- myndafræðilegar kennisetningur og skriffinnska stendur í veginum. Auk þess skortir bændur í einka- rekstri nauðsynlegar vélar og tæki. Tölfræðilegar upplýsingar frá hinu mikilvæga landbúnaðarhéraði Stavropol í Suður-Rússlandi sýna að þar eru enn sem komið er að- eins 39 jarðir í einkarekstri og að- eins 70 til viðbótar hafa sótt um að fá að hefja slíkan rekstur. Að sögn talsmanna hins opinbera er ástæð- an sú að svo fáir óska eftir að reka sjálfstæðan búskap. Bændur í einkarekstri á svæðinu segja hins vegar að margir vilja reka bú sín sjálfir en hið opinbera reyni að bregða fæti fyrir það. Sá þáttur endurreisnar landbún- aðarins sem slegið hefur í gegn er ákvörðunin um að starfsmenn á ríkisbúum og samyrkjubúum fái að stækka þann skika sem þeir mega rækta sjálfir, úr0,6 ha í 1,3 ha. Alls hafa 120 þúsund manns sótt um það í Stavropol. Þetta er út af fyrir sig mikilvægt þar eð í Sovétríkjun- um er áætlað að þessi smáskika- ræktun sem tekur aðeins til fárra % af ræktuðu landi skili um 30% af kjötframleiðslunni, 35% af mjólk og 70% af ávöxtum og grænmeti. Eistland. Endurreisn í landbúnaði felst í því að einkarekstur tekur við stig af stigi, jafnframt því sem ríkisbú og samyrkjubú bera nú ábyrgð á fjárhag sínum, þ.e. að reka verður þau með hagnaði. Einkavæðingin vex jafnt og þétt. Árið 1988 var einkarekstur í landbúnaði heimil- aður, á miðju ári 1990 höfðu verið stofnuð 1500 einkarekin býli, snemma árs 1991 3000 býli. Einkajarðirnar eru að meðaltali með 10-20 hektara af ræktunar- landi og þær skila um 4-5% af búvöruframleiðslunni. Mest er um blandað búfjárhald. Enginn bóndi í einkarekstri á enn sem komið er jörðina sem hann býr á. Bændurnir eiga byggingarnar en hafa landið á leigu frá ríkisbúi eða samyrkjubúi. Þessir nýju bændur fá sama eða jafnstórt land og ættingjar þeirra urðu að láta af hendi við stofnun samyrkjubúanna. Ríkisstjórnin stefnir að einka- rekstri í landbúnaði en það tekur sinn tíma að koma honum á. Eign- arfyrirkomulagið í landbúnaði er til umræðu í Þjóðþinginu. Sumir þingmenn vilja að samyrkjubúun- um verði skipt upp í smærri býli með valdboði, aðrir vilja að bænd- ur á hverju samyrkjubúinu fái sjálfir að ráða því, þannig að samyrkjubú með lélgan rekstur Eystrasaltslöndin Fólksfjöldi millj. Stærð ferkílómetrar Þjóðerni íbúa Eistland 1,6 45.000 61% Eistlendingar Lettland 2.7 64.000 52% Lettar Litháen 3,7 65.000 80% Litháar

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.