Freyr

Árgangur

Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 16

Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 16
884 FREYR 22.'91 Frumkvœði komi frá einstaklingum sjálfum að fjölbreyttara atvinnulífi í sveitum landsins. Eftir Arnald Bjarnason Þegar rœtt er um nýsköpun atvinnu í sveitum kemur fátt í hugann í fyrstu, ef til vill vegna þess að hugtakið nýsköpun tengir fólk oft framandi framleiðslu eða atvinnu- greinum, atvinnuháttum sem ekki hafa verið sveitunum sjálfgefnir, leitin beinist því ef til vill að hinu óraunhœfa og framandi og því er hún oft dœmd til að mistakast. Og þó, margs konar framleiðsla og 1 atvinnustarfsemi fer fram í sveitum og bændafólk leggur víða hönd að verki við störf sem ekki flokkast beinlínis undir hefðbundin bústörf, trúlega í mun meiri mæli en nokkur hefur yfirsýn yfir. Bændafólk hefur enda lengst af þurft að tileinka sér almenna verk- þekkingu, víðari og fjölþættari en margar aðrar stéttir, sem best er lýst í vísu Stephans G. Löngum var ég læknir minn, lögfræðingur, prestur, smiður, kóngur, kennarinn, kerra, plógur, hestur. Engin einföld lausn í sjónmáli í upphafi starfs míns í þágu land- búnaðarins, sem atvinnumálafull- trúi, ollu mér nokkrum erfiðleik- um þær væntingar að með þessu verkefni kæmi sægur af fullsköp- uðum atvinnuhugmyndum, full- mótuðum til atvinnusköpunar í sveitum. Raunveruleikinn er því miður ekki svo einfaldur. Framleiðsla vöru er aðeins eitt stig þess ferils sem leiðir til endan- legrar verðmætasköpunar. Áður en til framleiðslu eða þjónustu kemur þarf að þróa vöru (hug- myndir) og reyndar ekki síður að finna vörunni markað. Ferillinn er því stundum langur, einkum ef framleiðslan er nýmæli á markaði eða þarf að finna henni sess á markaði sem þegar er hlaðinn sam- bærilegum vörum. En nóg af markaðsfræði að svo stöddu. Sá mikli samdráttur í fram- leiðslu og framleiðslutakmarkanir innan hefðbundins landbúnaðar, sem yfir hann hefur gengið á skömmum tíma, kallar á úrræða- semi bændafólks til að finna aðrar leiðir til atvinnusköpunar og tekju- öflunar. Sívaxandi tæknivæðing í landbúnaði stuðlar einnig að því sama þar sem tæknin leysir manns- höndina frá verki. Pjóðin rígheldur í það afkomu- stig og þá velferð sem hún hefur vanist. Þegar hún getur ekki við- Arnaldur Bjarnason rœðir við Aðalstein Símonarson, garðyrkjubónda á Laufskálum í Stafholtstungum. (Freysmyndir myndatextar - J.J. D.)

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.