Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 17
22.'91
FREYR 885
haldið eða aukið verðmætasköpun
með vaxandi framleiðslu og út-
flutningsverðmætum leitar hún til
innri hagræðingar, fyrst og fremst í
undirstöðuatvinnugreinum, land-
búnaði, sjávarútvegi og fiskiðnaði.
Þetta er ein skýring á þeirri þróun
sem yfir landbúnaðinn gengur og
kallar á úrræði sem veitt geta við-
fangsefni í sveitum til mótvægis við
framleiðslusamdrátt og tekjurýrn-
un.
Ekki er í sjónmáli nein sú bú-
grein sem gæti ein komið að veru-
legum hluta í stað okkar hefð-
bundna landbúnaðar og því verður
að leita í smærri og fjölþættari
möguleika. Þar er nærtækast að
hyggja að þeim möguleikum sem
jörðin eða landareign býður, þ.e.
nýtingu hlunninda jarðarinnar og
annarra kosta sem geta gefið af-
urðir eða skapað önnur viðskipti
eða verðmæti.
Ahugi á þessum möguleikum
hefur vaxið verulega á örfáum
árum, þörf þéttbýlisbúa fyrir úti-
veru og afþreyingu úti í náttúr-
unni, snertingu við landið, gefur
sveitunum ýmis úrræði sem munu
vaxa með hraðbatnandi vegakerfi
og fjölgun erlendra sem innlendra
ferðamanna. Áhugi bændafólks
beinist nú einkum að þessum
möguleikum, þ.e. þjónustu við
ferðamenn, framboði á afþreyingu
tengdri ferðamönnum og fram-
leiðslu á vörum og munum, sem
höfða til ferðamanna. Sumardvöl
þéttbýlisbarna í sveitum er orðin
umtalsverð atvinnugrein og hlið-
stæð öldrunarþjónusta á eflaust
eftir að aukast.
Þó þetta leysi ekki hinn stóra
yfirstandandi vanda íslensks land-
búnaðar, eru þessi úrræði þau sem
helst er hægt að grípa til í stöðunni.
Farsæl uppbygging og þróun ferða-
þjónustu á vegum bænda hefur
m.a. aukið ýmis önnur viðskipti og
þjónustu í sveitum og stuðlað
þannig að atvinnusköpun á óbein-
an hátt.
Nágrannaþjóðir glíma við
samskonar vanda
Það er athyglisvert að kynnast því í
Hjalta Haraldssyni datt íhug að breyta skika afjörð sinni, Ytra-Garðshorni í
Svarfaðardal, ígolfvöll fyrir nokkrum árum. Félagar ígolfklúbbinum Hamri
frá Dalvík og úr Svarfaðardal stunda þar golf af kappi. Hér er Þórunn
Bergsdóttir frá Dalvík á „gríninu“ að búa sig undir að „pútta". Helgi
Þorsteinsson, maður hennar, fylgist með.
þessu starfi að við hliðstæð vanda-
mál og þó öllu stórfelldari er að
glíma í hinum vestræna heimi. Inn-
an Efnahagsbandalags Evrópu er
umfram framleiðsla landbúnaðar-
vara gífurleg og niðurgreiðslur og
styrkir einnig. Þjóðir Efnahags-
bandalagsins virðast kjósa að búa
við þetta ástand í nafni byggða-
stefnu og til að forðast enn aukið
atvinnuleysi. Ef litið er til þeirra
úrræða sem helst eru talin henta til
atvinnusköpunar í dreifbýli í þess-
um löndum er margt kunnuglegt.
• Þróun undirstöðuatvinnugreina
(landbúnaðar, skógræktar og
fiskveiða).
Guðmundur Jónsson og Margrét Júlíusdóttir á Bjarnastöðum í Hvítársíðu
hafa rekið hestaleigu frá 1970 og seinni árin fleiri þœtti í ferðaþjónustu.