Freyr

Árgangur

Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 19

Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 19
22.’91 FREYR 887 Að Lundi við Varmahlíð í Skagafirði býr Anna Hróðmarsdóttir og rekur verslun með eigin framleiðslu, m.a. handunna leirmuni. A Bakkaflöt í Lýtingsstaðhreppi íSkagafirði reka hjónin Sigurgeir Friðriksson og Klara Jónsdóttir fjölþœtta ferðaþjónustu: gistingu, veitingar, sumarhús og tjaldstœði. Öll aðstaða og þjónusta er til mikillar fyrirmyndar. Framleiðnisjóður landbúnaðarins og Smáverkefnasjóður styðja nýja starfsemi í sveitum Rétt er að vekja athygli á Fram- leiðnisjóði landbúnaðarins og möguleikum hans til að stuðla að búháttarbreytingum eða að styðja við nýsköpun atvinnu í sveitum. Verkefni mínu, sem atvinnu- málafulltrúi bænda, fylgir einnig sjóður, svokallaður Smáverkefna- sjóður, sem er ætlað að styðja við smærri atvinnuverkefni fólks í sveitum. Yfir 30 umsóknir hafa nú borist til sjóðsins og 19 umsóknir hafa verið afgreiddar jákvætt. Verkefnin sem hafa verið styrkt eru í meginatriðum þessi: Ferðastyrkur vegna fræðslu er- lendis um úrvinnslu ullar, kaup á iðnaðartæki til viðgerða í fiskiðn- aði, styrkir til að stofna saumastof- ur, vegna verkunar og frágangs eldisfisks, til stofnsetningar list- muna- og minjagripasölustaðar, til staðar, til þróunarverkefnis við skinnasútun, styrkur til vefnaðar- námskeiðs, til framleiðslu á þroskaleikföngum, tækjakaup til vinnslu á fiðu, vegna tilraunar til reksturs minjagripasölustaðar, styrkur vegna jarðaberjafram- leiðslu, vegna tölvurekstrar, til listiðnaðarframleiðslu, vegna stofnbúnaðar heilsuræktarstöðva í sveit og til þróunar framleiðslu úr hreindýraskinnum. Á þessari upptalningu sést að verkefni af ýmsum toga eru styrkt og sjálfsagt er að leita upplýsinga um reglur og möguleika sjóðsins til stuðnings við smærri vænlegar at- vinnuhugmyndir. Nokkur verkefni eru í gangi Nokkur verkefni eru yfirstandandi eða í undirbúningi við þróun smá- iðnaðar og framleiðslu sem tengist íslensku ullinni. Mikill áhugi er á að þróa vinnslu ullar og draga fram hina sérstöku eiginleika hennar með það að markmiði að framleiða verðmæta, hágæða ull til handiðn- aðar og listsköpunar. Að þessu hafa Byggðastofnun og Iðntækni- stofnun stutt ásamt Framleiðni- sjóði. Með aðstoð hans hefur hafist ullarúrvinnsla á Hvammstanga og því var þar talinn eðlilegur vett- vangur fyrir ráðstefnu áhugafólks um þessi mál í júlí síðastliðnum. Pá er mjög áhugavert það fram- tak nokkurra sunnlenskra kvenna með Helgu Thoroddsen í farar- broddi, en Helga hefur aflað sér menntunar í Bandaríkjunum í vefj- aefnafræði (Textil science), að nýta gamla skólahúsið og félags- heimilið Þingborg í Gnúpverja- hreppi, en hreppurinn hefur lagt þeim það til, sem opna vinnustofu og námskeiðsstað, sýningar- og söluaðstöðu á framleiðslu sem er árangur af þróun ullarúrvinnslu. Og víðar á landsbyggðinni eru ein- staklingar í samstarfi eða einir sér

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.