Freyr

Árgangur

Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 25

Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 25
22.’91 FREYR 893 Þyngdaraflið notað til að kljúfa stórviði Bændurnir á Sökku í Svarfaðardal, feðgarnir Þorgils Gunnlaugsson og Gunnsteinn Þorgilsson, nota þyngdarafl jarðar til að rífa reka- viðardrumba niður í girðingar- staura. Það gera þeir með því að beita dráttarvél með mokst- urstækjum og skúffu við verkið. Feðgarnir fara þannig að þessu að þeir bolta fast ca 5 tommu breitt og 10 mm þykkt flatjárn á milli bita á moksturstækinu. Járnið er áður brýnt eins og hnífur á neðri brún. Rekaviður er efnaður niður í venjulega stauralengd og látinn standa upp á endann. Staurinn klofnar eins og eldpýta undan þunga verkfærisins þegar tækis- hnífurinn fellur niður á enda hans. Og til að ná ennþá meiri pressu á hnífinn hafa þeir möl í skúfunni. Sökkubændur geta klofið drumba allt að 40 cm í þvermál með þessu móti. Traktorinn er Ford 4000. „Þetta er afar fljótleg aðferð,“ sagði Þorgils á Sökku. Gunnsteinn Porgilsson klýfur reka- viðardrumbinn eins og smjör með risahnífnum framan á dráttarvélinni. Ljósm. Þorgils Gunnlaugsson.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.