Freyr

Árgangur

Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 31

Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 31
22.'91 FREYR 899 Á fundi stjórnar Stéttarsambands bœnda 6. nóvember sl. gerðisf m.a. þetta: Samningar milli nautakjötsframleiðenda og Sláturfélags Suðurlands. Formaður kynnti þær umræður sem átt hafa sér stað milli Stéttar- sambands bænda og Landssam- bands kúabænda annars vegar og Sláturfélags Suðurlands hins vegar vegna ágreinings um sölufyrir- komulag og verðlagningu á nauta- kjöti. Eftirfarandi tillaga var sam- þykkt eftir allmiklar umræður: „Stjórn Stéttarsambands bænda telur brýnt að sem fyrst verði hrint í framkvæmd þeim úrbótum sem nauðsynlegar eru varðandi fram- leiðslu og markaðssetningu nauta- kjöts. Er þar vísað til minnisblaðs frá starfshópi sem Framleiðsluráð landbúnaðarins hefur þegar skipað til að vinna að lausn þessara mála, dags. 29. október 1991. Stjórnin telur brýnt að bændur og sláturleyfishafar taki höndum saman um lausn þessa vanda svo að sem fyrst náist að greiða skráð verð til framleiðenda eins og lög mæla fyrir um. Meðan sú vinna stendur yfir og jafnvægi er að nást eru það tilmæli Stéttarsambands bænda til framleiðenda að ganga ekki að sláturleyfishöfum vegna núverandi greiðslutilhögunar fyrir nautakjöt". Skipan nefndar um afurðasölumál. Fjallað var um þær breytingar sem verða á framleiðslu- og sölumálum landbúnaðarins við afnám útflutn- ingsbóta og verðábyrgðar ríkisins hinn 1. september 1992. Akveðið var að óska eftir því við landbún- aðarráðherra að hann skipi nefnd til að undirbúa þær breytingar. Stéttarsambandið leggur til að nefndin verði skipuð níu mönnum, þannig: Tveimur mjólkurframleið- endum og tveimur sauðfjárbænd- um sem stjórn Stéttarsambandsins tilnefni, tveimur mönnum til- sláturleyfishafa, einum manni til- nefndum af Samtökum afurða- nefndum af landbúnaðarráðherra stöðva í mjólkuriðnaði, tveimur og sé hann formaður. mönnum tilnefndum af Samtökum Frh. á bls. 901. Bændaskólinn á Hvanneyri Innritun á vorönn er hafin Athygli er vakin á því að unnt er að hefja nám í Bændaskólanum á Hvanneyri um áramót. — Fyrsta önn hefst 6. janúar. — Stúdentar, sem fara styttri leið, geta hafið nám í janúar, apríl eða júní. Námið skipfist í fjórar annir, þar af ein verkleg á viðurkenndu býli. Á síðustu önn er kennt á tveimur sviðum; Búfjárræktarsviði og Rekstrarsviði. í undirbúningi er þriðja sviðið; Landnýtingarsvið. Dæmi um valgreinar kenndar veturinn 1991-1992: hrossarækt, ullariðn, skógrækt, vinnuvélar, búsmíði og sláturhúsastörf. Við veitum upplýsingar í síma 93-7 00 00. Umsóknarfrestur er til 10. desember 1991. Bændaskólinn á Hvanneyri 311 Borgarnes

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.