Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 33
22.'91
FREYR 901
Bœndur á hvunndagsfötum, 3. bindi
Viðtalsbók Helga Bjarnasonar
Bókin Bændur á hvunndagsfötum,
þriðja og síðasta bindi samnefndra
viðtalsbóka Helga Bjarnasonar
blaðamanns, er komin út. I bók-
inni eru viðtöl við fjóra bændur
sem allir hafa frá viðburðarríku lífi
að segja. Bændurnir eru Egill
Ólafsson á Hnjóti, Eiríkur Sigfús-
son á Sflastöðum, Björn Sigurðs-
son í Úthlíð og Egill Jónsson á
Seljavöllum. Hörpuútgáfan á
Akranesi gefur bókina út.
„Er rekinn áfram af fróðleiks-
fýsn“, er heiti viðtals við Egil
Olafsson bónda og fræðaþul á
Hnjóti í Örlygshöfn. Egill hefur
helgað líf sitt varðveislu menning-
arverðmæta. Hann kom upp
byggðasafni og gaf Vestur-Barða-
strandarsýslu. Safnið er eitt
merkasta héraðsminjasafn lands-
ins. Síðustu árin hefur hann verið
að safna efni í flugminjasafn sem
hann hefur nú gefið Flugmála-
stjórn.
Eiríkur Sigfússon stórbóndi á
Sflastöðum í Kræklingahlíð í Eyja-
firði segir meðal annars frá deilum
við yfirvöld og kerfið í frásögn sem
hefur yfirskriftina „Kaupi mér
aldrei frið“. Baráttusaga Eiríks
hófst þegar hann kornungur neit-
aði að láta kaupfélagsstjóra KEA
kúga sig í kartöfluviðskiptum.
„Ymislegt á sig leggjandi til að
sjá drauminn rætast“, er yfirskrift
viðtals við Björn Sigurðsson bónda
í Uthlíð í Biskupstungum. Björn er
einn af brautryðjendum í ferða-
þjónustu bænda sem sannað hefur
gildi sitt á undanförnum árum. Á
jörð hans hefur byggst upp stórt
sumarbústaðahverfi og hann
stendur nú í stórhuga uppbyggingu
á þjónusu við sumarbústaðafólk og
aðra ferðamenn.
He/gi Bjarnason.
Egill Jónsson bóndi og alþingis-
maður á Seljavöllum í Nesjum í
Kornafirði segir frá störfum sínum
í landbúnaði í Austur-Skaftafells-
sýslu. Eitt mikilvægasta verkið við
að koma þar á búskap með nú-
tímasniði og jafnframt það
þekktasta er félagsræktunin á
söndunum. Heiti frásagnarinnar,
„Þú sérð ekkert þessu líkt fyrr en í
himnaríki", er tekið upp úr lýsingu
Fréttir frá Stéttarsambandi bœnda
Frh. afbls. 899.
Hugmynd Stéttarsambandsins
er að nefndin geti, eftir því sem
henta þykir, starfað í tveimur hlut-
um, þar sem annars vegar yrði
fjallað um málefni mjólkurfram-
leiðslunnar og hins vegar um mál-
efni sauðfjárframleiðslunnar.
Bréf hefur verið sent til land-
búnaðarráðherra til að fylgja þessu
máli eftir.
hans á uppgræðslunni í Skógey í
Hornafirði.
Bændur á hvunndagsfötum,
þriðja bindi, er 172 blaðsíður að
stærð, prýdd um 100 ljósmyndum
auk yfirlitskorta af heimabyggð
viðmælenda. í bókinni er nafna-
skrá fyrir öll þrjú bindin. Bókin er
unnin að öllu leyti í prentsmiðjunni
Odda hf.
(Fréttatilkynning).
Leiðrétting
í Verðlagsgrundvelli sauðfjáraf-
urða 1. september 1991, sem birtist
í 20. tbl. bls. 826-827 er verð á 1.
verðfl. DI* gefið upp kr. 640,22,
en á að vera 460,22. Blaðið biðst
velvirðingar á þessari villu.