Freyr - 15.11.1991, Blaðsíða 39
þjóðernismál, landhelgismál og at-
vinnumál.
Til síðasta Kollabúðafundar
boðuðu þeir Sigurður Jensson pró-
fastur í Flatey og þingmaður Barð-
strendinga og Guðjón Guðlaugs-
son Ljúfustöðum, þingmaður
Strandamanna.
Fundur þessi var allfjölmennur
og sóttu þann fund menn víðsvegar
að af Vestfjörðum og úr Breiða-
fjarðareyjum.
Skúli Thoroddsen sýslumaður
ísfirðinga mætti á þessum fundi og
ræddi hann fyrstur um réttindi
kvenna. Tengdafaðir Skúla hafði
orðið manna fyrstur til að skrifa
um stofnun kvennaskóla og
Theodóra, kona Skúla, stjórnaði
með honum frjálslyndasta blaði
landsmanna.
Hjónin Bjarni Pórðarson og
Þórey Pálsdóttir á Reykhólum
tóku að sér allan undirbúning á
Kollabúðaeyrum fyrir fundar-
menn. Þórey annaðist kaffiveiting-
ar með stúlkum sínum fyrir fundar-
menn allan daginn.
Veður var óhagstætt fundardag-
inn og rigndi mikið.
Tvíbýli var þá á Kollabúðum og
bjuggu þá þar faðir minn, Árni
Gunnlaugsson, og Jóhann Þórðar-
son og tóku þeir að sér hestagæslu.
Ég heyrði oft Önnu systur mína
tala um þennan fund en sakir fá-
tæktar gat faðir okkar ekki leyft sér
þann munað að sitja fundinn en
geta má sér þess nærri hvar hugur
hans hefur verið. Einnig hef ég
heyrt eldra samtíðarfólk í nágrenni
við mig minnast þessa merka at-
burðar með gleði og hrifningu. Það
hafi ekki séð svo marg fólk saman-
komið áður.
Nú eru þessir atburðir að hverfa
í þögn gleymskunnar, en fyrir
nokkrum árum gerði Fjórðungs-
samband Vestfjarða mikið átak og
lét reisa minnisvarða um Kolla-
búðafundi á Kollabúðareyrum, en
áður hafði verið merkt við búða-
rústir. Hver minnist ekki Þorska-
fjarðarþings og afdrifs Þorkels
Súrssonar þar. Þegar ekið er um
Kollabúðaeyrar þá er sjaldan
stansað þar enda er fáum kunnugt
um sögu tóftarbrotanna.
Hins vegar er það hlutverk okk-
ar hinna eldri að kynna þau menn-
ingarverðmæti er ekki mega falla í
gleymsku og týnast með öllu.
Þeir sem stóðu að Kollabúða-
fundum börðust fyrir mikilsverð-
asta máli einstaklinganna og þjóð-
ar. Það er frelsinu.
lngibjörg Árnadóttir var fœdd árið 1897
og átti heima á Miðhúsum i Reykhóla-
sveit. Htm lést 30. maí sl. Erindi þetta var
upphaflega flutt á kvöldvöku í Ríkis-
útvarpinu upp úr 1970.
Aðgefnutilefni:
Lífshœttulegt
að bera olíu eða feiti á toppventla og -hettu súrhylkja
eftir Stein Guðmundsson, ísaga h/f
Það kemur fyrir einstaka sinnum að notendur súrhylkja setja olíu eða
koppafeiti á toppventla súrhylkja. Einnig smyrja menn olíufeiti á topp-
hettu hylkisins. Þetta er gert til þess að liðka ef skrúfugangurinn er
stirður. Þetta er lífshættulegt; olía og feiti má ekki koma í snertingu við
súrefni undir þrýstingi, það veldur sprengingu. Einnig skal bent á að setja
ekki saman gasslöngur með eirröri. Ef það er gert acetylen megin, veldur
það einnig sprengingu. Nota skal til þess gerða samsetningarnippla.
Munið: Olía, feiti, silicone og önnur brennanleg efni mega alls ekki
komast í samband við súrefni.
Ef spurningar koma upp, hafið samband við starfsmenn okkar.
Með bestu kveðju,
ÍSAGA HF.
S. G.