Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 4
KEDJUR
Smíöum keöjur samdœgurs eftir óskum hvers
og eins. Eigum einnig keöjur ó lager.
Sendum hvert d land sem er.
GAP
G.Á. Pétursson hf
snjókeðjumarkaðurinn
Nútíöinni Faxafeni .14, sími 68 55 80
Enskunámskeið á
snœldum
Blindrabókasafn íslands og Bréfa-
skólinn hafa gefið út enskunám-
skeið á snældum, einkum ætlað
blindum og sjónskertum en einnig
öðrum sem af einhverjum ástæð-
um eiga erfitt með að lesa eða
hentar vel að hlusta og læra, t.d.
meðan þeir aka í bíl eða vinna með
höndunum.
Útgáfa enskunámskeiðsins er
samstarfsverkefni Bréfaskólans og
Blindrabókasafns Islands. í tilefni
50 ára afmælis Bréfaskólans átti
skólinn frumkvæði að þessu árang-
ursríka samstarfi sem væntanlega
verður framhald á. Blindir og sjón-
skertir geta yfirleitt illa notfært sér
þá endurmenntun sem í boði er í
þjóðfélaginu, en með því að færa
námsefnið yfir á aðra miðla, svo
sem hljóðsnældur, blindraletur
eða stækkað letur opnast ný leið til
jafnréttis fyrir þennan hóp.
Námsefnið er frá frönsku náms-
gagnastofnuninni Assimil og er
upphafleg útgáfa efnisins bæði á
bók og snældum. Bréfaskólinn
hefur einkaumboð á íslandi á
námsefni frá þessari stofnun og
hefur langa og góða reynslu af því.
Assimil veitti okkur góðfúslega
leyfi til að laga námsefnið að þörf-
um blindra. Með nokkurri um-
breytingu hefur allt námskeiðið
verið yfirfært á hljóðsnældur og er
þetta í fyrsta sinn hér á landi að sett
er á markaðinn málanámskeið sem
nýtist til fullnustu þeim sem geta
ekki eða eiga erfitt með að lesa
prentað mál. Hér er því um tíma-
mótaútgáfu að ræða.
(Fréttatilkynning frá Bréfaskólanum.)