Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 8

Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 8
916 FREYR 23.’91 Kári Aðalsteinsson garðyrkjubóndi í kaktusrœktarhúsi sínu. (Freysmyndir - J.J. D.). Að Laufskálum í Stafholtstungum Þar er rœktað megnið af öllum kaktusplöntum á íslenskum markaði. í Borgarfirði eru 15 garðyrkjubýli og tvö að auki þar sem ylrœkt er aukabúgrein. Laufskálar heitir ein af garðyrkjustöðvunum í héraðinu og þar er rœktað langmest af þeim kaktusplöntum sem eru á markaði hérlendis. Aðalsteinn Símonarson, garð- yrkjubóndi í Laufskálum í Staf- holtstungunr í Borgarfirði er braut- ryðjandi í kaktusrækt á íslandi. Hann er nú hættur sjálfstæðum at- vinnurekstri og sonur hans, Kári, er tekinn við rekstri garðyrkju- stöðvarinnar. Aðalsteinn var lengi formaður Sölufélags garðyrkju- manna og í stjórn Sambands garð- yrkjubænda. Aðalsteinn fór að vinna við garðyrkju 16 ára í Hveragerði. Þangað kom hann af tilviljun frá heimili sínu, Vatnskoti, í Þing- vallasveit, hafði verið sendur með öðrum unglingi einhverra erinda. Það blundaði áhugi á garðyrkju í Aðalsteini. Um þær mundir rak ríkið bú á Reykjum í Ölfusi þar sem stunduð var garðyrkja og einnig rak ríkið hæli fyrir berkla- veika í Ölfusi. Aðalsteinn hafði áður kynnst bústjóranum á Reykj- um, Guðjóni A. Sigurðssyni frá Grund í Svarfaðardal og réðst að Reykjabúinu til hans. Þar vann hann uns hann fór til útlanda.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.