Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 9
23.'91
FREYR 917
Aðalsteinn Símonarson.
Sigurbjörg Pálsdóttir.
Kári Aðalsteinsson.
í þennan tíma unnu danskir og
þýskir menn í garðyrkjustöðvun-
um í Hveragerði. Af kynnum
sínum við þá fékk Aðalsteinn löng-
un til að sjá sig um í heiminum.
Hann hleypti því heimdraganum
og hélt til Svíþjóðar þar sem hann
vann í rúm tvö ár á garðyrkjustöð í
Vermalandi. „Égfékkþarna ágæta
verkmenntun í garðyrkju í viðbót
við þá undirstöðu sem ég hafði
heiman úr Hveragerði“ sagði Að-
alsteinn. „Og ég undi mér vel, því
Vermlendingar eru viðkunnanlegt
fólk“. Aðalsteinn flutti með sér
heim ýmsar nýjungar frá starfsdvöl
sinni í Svíþjóð, en heim kom hann
síðla árs 1939. Stríðið var byrjað.
Brautryðjandi í
kaktusframleiðslu
Kona Aðalsteins er Sigurbjörg
Pálsdóttir. Þau Aðalsteinn tóku
landskika á leigu úr landi Brúar-
reykja og hófu að reisa þar garð-
yrkjubýli vorið 1945 og skírðu
Laufskála. Áður höfðu þau verið
tvö ár á Kleppjárnsreykjum við
garðyrkjubúskap.
Á Laufskálum ræktaði Aðal-
steinn tómata og gúrkur, auk ann-
ars grænmetis, og hann var fyrstur
manna hér á landi til að rækta
banana í atvinnuskyni, það dæmi
gekk þó ekki upp. Fyrir rúmum 30
árum hóf hann að rækta kaktus-
plöntur, sem seinni árin hafa verið
allt að þriðjungur af afurðum
búsins í verðmætum talið. Má telja
Aðalstein brautryðjanda í kaktus-
framleiðslu á íslandi og nú er fram-
leitt á býlinu langmest af þeim
kaktusplöntum sem eru á markaði
hérlendis. Aðalsteinn var einnig
brautryðjandi í ræktun á tómötum í
eintómum vikri, og í vatnsrækt, en
þannig ræktun átti þá engan
hljómgrunn hér.
Kári Aðalsteinsson tók við
rekstri garðyrkjustöðvarinnar af
föður sínum árið 1986 og hefur
aukið fjölbreytni í framleiðslu og
leggur áherslu á blómaræktun
ásamt grænmeti.
Laufskálar í Stafholtstungum.