Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 12
920 FREYR
23.'91
Fólk lœrir að treysta á sjálft sig
Bréfaskólinn - hagkvœmt heimanám fyrir unga og gamla
Bréfaskólinn varð 50 ára á sl. ári og var afmœiisins minnst með gestaboði 15. október í
fyrra, þangað sem boðið var menntamálaráðherra, fyrrverandi skólastjórum, aðstand-
endum skólans og fleiri velunnurum. Á þessari rúmu hálfu öld hafa tugir þúsunda
íslendinga á öllum aldri hagnýtt sér fjarkennslu Bréfaskólans og notið frœðslu sem þeir
annars hefðu e.t.v. farið á mis við.
Brautryðjandi í
fjarkennslu hérá landi.
Bréfaskólinn hefur sérhæft sig í
fjarkennslu meö bréfum. Enn-
fremur eru nú notuð hljóð- og
mvndbönd og símbréf (símfax)
þegar það á við og farið er að huga
að tölvunotkun. Það fer í vöxt að
kennarar Bréfaskólans hafi síma-
viðtalstíma. Rannsóknir og
reynsla manna af fjarkennslu sýna
þó að mestu máli skiptir um góðan
námsárangur að námskeiðin séu
vel hönnuð. kennslubréfin vönduð
og að samskipti nemenda og kenn-
ara séu góð.
Þeir sem stunda nám í bréfa-
skóla eru frjálsari að því en við
aðra kennslu hvernig þeir haga
námi sínu. Hins vegar gerir bréfa-
skólanám meiri kröfur um ábyrgð
og sjálfsaga einstaklingsins og
sjálfstæð vinnubrögð. Þjálfun þess-
ara eiginleika kemur öllum að
gagni.
Guðrún Friðgeirsdóttir skóla-
stjóri sagði í viðtali við Frey að
bréfakennsla væri þaulreynd að-
ferð sem bæri góðan árangur.
Nemendur Bréfaskólans væru á
öllum aldri, frá 12-85 ára. og þeir
kæmu úr öllum þjóðfélagsstéttum.
allsstaðar á landinu. Á hverju ári
innritast yfir 1000 nýir og fróð-
leiksfúsir nemendur.
Bréfaskólinn er til húsa í Nóa-
túni 17, 3. hæð. 105 Reykjavík.
Hann hefur pósthólf 5144 og síma
91-629750. Skólinn starfar allt ár-
ið. Skrifstofa hans er opin frá kl. 9
Guðrún Friðgeirsdóttir við vinnu sína í afgreiðslu Bréfaskólans. Freysmynd-
J.J.D.