Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 13
23.’91
FREYR 921
til 16:30 og þangað getur fólk
hringt eða skrifað og látið innrita
sig í eitt bréfanámskeið eða fleiri.
Ef menn innritast símleiðis eða
með bréfi, fá þeir send öll náms-
gögnin í einu 2-3 dögum síðar í
póstkröfu.
Símsvari skólans er opinn á
kvöldin og um helgar og þangað
má koma skilaboðum og innritast
með því að nefna það eða þau
námskeið sem menn vilja innritast
í, ásamt nafni, heimilisfangi og
póstnúmeri. Sendir þá Bréfaskól-
inn námsgögn þegar í stað í póst-
kröfu.
Skólinn sendir ókeypis kynning-
arefni um starfsemi sína hvert á
land sem er og námsráðgjafi
skólans er reiðubúinn að veita að-
stoð og leiðbeinir um námsaðferð-
ir og hvernig eigi að skipuleggja
námið.
„Ef menn t.d. eru að hugsa um
að búa sig undir nýtt starf eða
skólagöngu eða vilja rifja upp fyrri
kunnáttu og eru í óvissu um á
hverju skuli byrja er gott að leita til
námsráðgjafans“, sagði Guðrún
Friðgeirsdóttir.
Bréfaskólinn var stofnaður 1940
og hefur starfað óslitið í rúma hálfa
öld. Samband íslenskra samvinnu-
félaga stofnaði skólann og var á því
sviði langt á undan sínum tíma hér
á landi. Bréfaskólinn er merkileg
stofnun og sérstæð í íslenskum
fræðslumálum og hefur verið
brautryðjandi í fjarkennslu í land-
inu.
Auk Sambandsins standa að
Bréfaskólanum Stéttarsamband
bænda, Farmanna- og fiskimanna-
sambandið, Alþýðusamband ís-
lands, Kvenfélagasamband ís-
lands, Öryrkjabandalagið, Banda-
lag starfsmanna ríkis og bæja og
Ungmennafélag íslands.
Fleiri námsgreinar
kenndaren áður.
Guðrún skólastjóri sagði að þegar
hún hefði komið að Bréfaskólan-
um árið 1988 hefði hann verið í
lægð og frekar lítið til af námskeið-
Stjórn Bréfaskólans. Talið frá vinstri: Harald Holsvík, Farmanna- og fiski-
mannasambandi tslands, Hörður Óskarsson, U.M.F.Í., Ingibjörg E. Guð-
mundsdóttir, M.F.A., Margrét Guðjónsdóttir, SÍS, Helgi Skúli Kjartansson,
S.Í.S., Ásgerður Ingimarsdóttir, Ö.B.Í., Sveinn Rögnvaldsson, S.Í.S., Stef-
anía María Pétursdóttir, K.í. og Guðrún Friðgeirsdóttir, Skólastjóri Bréfa-
skólans. - Myndin var tekin í ágúst 1990.
um. „Ég var svo heppin að hafa
mér við hlið ákaflega duglegan og
áhugasaman formann, sem eyddi
þó nokkrum tíma í að vera formað-
ur stjórnar Bréfaskólans. Þessi
maður er Þráinn Hallgrímsson sem
þá var fræðslufulltrúi hjá Menning-
ar- og fræðslusambandi alþýðu, en
nú skrifstofustjóri hjá ASÍ. Við
gerðum átak í námsefnisgerð. Það
kom út hvert námskeiðið á fætur
öðru á næstu mánuðum, og þetta
bjargaði málum. M.a. kom út
námskeið í siglingafræði sem varð
mjög eftirsótt. Þetta var mjög
annasamur tími. Það kemur fyrir
enn, ef upp koma vandamál að ég
hringi í Þráin".
Guðrún sagði að Bréfaskólinn
væri nú sjálfseignastofnun sem
stæði á eigin fótum. Auk hennar er
einn starfsmaður við daglega af-
greiðslu. Þá er fjöldinn allur af
kennurum og höfundum sem
semja efni.
„Tvívegis hefur verið skipuð
fjarkennslunefnd af menntamála-
ráðuneytinu, síðast fyrir 1 ári. í
hvorugt skiptið var skipaður full-
trúi frá Bréfaskólanum. Menn
höfðu ekki áhuga á að nýta reynslu
úr starfi Bréfaskólans, eina
skólans í landinu sem hafði ein-
göngu sinnt fjarkennslu í áratugi.
Þetta þótti fleirum skrýtið en okk-
ur,“ sagði Guðrún. „Hinsvegar er
þess að geta að Fjarkennslunefnd
hefur verið hlynnt Bréfaskólanum
og við höfum fengið styrk þaðan
oftar en einu sinni til námsefnis-
gerðar og það hjálpar mikið. Við
fáum líka ofurlítið framlag frá rík-
inu, sem næstum þrefaldaðist árið
1988, þegar skólinn varð fjárhags-
lega sjálfstæður.“
Bréfaskólinn býður upp á um 50
námskeið af ýmsu tagi. Þar að auki
er skólinn með námsefni til
sjálfsnáms í erlendum tungumál-
um frá franskri stofnun sem Bréfa-