Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 15
23.'91
FREYR 923
Bartoszek, sem er Pólverji. Þau
hafa bæði dvalist hér árum saman
við nám og störf. Kennsluefnið er
kennslubréf og snældur og svo eru
próf í lok hvers bréfs. Kennari er
Bragi Halldórsson, íslenskukenn-
ari í MR.
Nýnámskeið.
Ný námskeið, sem hafa gengið vel
hjá okkur, er t.d. teikning og sálar-
fræði og nú erum við að fara af stað
með námskeið fyrir sjónskerta eða
þá sem eiga erfitt með að lesa af
einhverjum ástæðum. Það er
enskunámskeið á snældum.
Við höfum verið í samvinnu við
Blindrabókasafn íslands um þessa
námsefnisgerð í ensku, og hefur sú
stofnun lagt því viðfangsefni gott
lið. Það verður gaman að geta boð-
ið blindum námskeið í ensku.“
„Á næsta leiti er mjög spennandi
námskeið í íslenskri stafsetningu.
Það er ætlað fullorðnum sem vilja
hressa upp á kunnáttu sína í ís-
lensku. Þar höfum við fengið í lið
með okkur alveg prýðilega kenn-
ara sem hefur reynslu af að kenna
fullorðnum.
Einnig komst enskunámskeið á
framhaldsskólastigi í gagnið í októ-
ber, en erum annars með þrjú
námskeið í ensku fyrir fullorðna.“
Guðrún sagði að svo virtist sem
enn væri mikil þörf fyrir Bréfaskól-
ann þrátt fyrir fjölbreytt framboð
af öðrum námstækifærum. Hún
sagði að rekstur skólans stæði í
járnum en ekki mætti af neinu líta.
Stöðugt aðhald í fjármálum er
nauðsynlegt og einnig að horfa
fram í tímann.
Að lokum sagðist Guðrún Frið-
geirsdóttir skólastjóri vera tiltölu-
lega ánægð með hvernig til hefði
tekist með starfsemi Bréfskólands
á þeim þremur árum sem hún hef-
ur veitt honum forstöðu. Því væri
ekki að neita að lítið rekstrarfé
setti starfseminni þröngar skorður.
Hún sagði það bjargfasta skoð-
un sína að skólinn hefði miklu hlut-
verki að gegna í framtíðinni í
fræðslu fyrir fullorðna. „Þegar fólk
á annað borð kemst upp á lagið
með að vera í bréfanámi, sækir það
í það áfram. Vegna þess að það að
geta stundað nám upp á eigin
spýtur og komast yfir þá erfiðleika
sem það er í byrjun að aga sig sjálft,
þroskar fólk sig geysilega mikið.
Fólk lærir að treysta á sjálft sig,
öðlast sjálfstraust, verður sjálf-
stæðara í vinnubrögðum sem það
yfirfærir svo á önnur verkefni.“
J.J.D.
Rykgrímur
Alfa Laval framleiðir nú ryk-
grímur sem sérstaklega eru ætlaðar
til að nota við bústörf. Þær eru
viðurkenndar af sænsku hollustu-
verndinni. Grímurnar eru af fimm
mismunandi gerðum með og án
ventils fyrir útöndun.
Árbók landbúnaðarins 1990
Út er komin Árbók landbúnaðarins 1990. (bókinni er að finna ítarlegar
skýrslur um framleiðslu, sölu og birgðir búsafurða verðlagsárið 1988/1989.
Jafnframt eru margháttaðar upplýsingar um verðlags- og framleiðslu-
stjórnunarmál í bókinni.
Bókin kostar kr. 1.100 til áskrifenda.
Allmargir eldri árgangar ritsins eru ennþá fáanlegir. Einstakir eldri
árgangar kosta kr. 500. Ef keyptir eru í einu lagi allir fáanlegir árgangar, um
30 talsins, kostar pakkinn kr. 9.000.
Upplýsingar um áskrift og eldri árganga eru veittir í síma 91-28288.
Framleiðsluráð landbúnaðarins