Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 16

Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 16
924 FREYR 23.'91 Kjötiðnaðarstöð SS á Hvolsvelli. Álman til luegri á myndinni, frá útbyggingunni, ernýbygging. 4 JpUjifj Flutningur kjötiðnaðarstöðvar SS á Hvolsvöll var heillaspor Viðtal við Leif Þórsson, verksmiðjustjóra hjá Kjötiðnaðarstöð Sláturfélags Suðurlands á Hvolsvelli Það þóttu mikil og góð tíðindi þegar Sláturfélag Suðurlands ákvað að flytja kjötvinnslu sína frá Reykjavík og austur á Hvolsvöll. Fyrir nokkru lagði fréttamaður Freys leið sína á Hvolsvöll til að kynna sér hvernig til hefði tekist um þennan flutning og hitti að máli Leif Þórsson verksmiðjustjóra hjá Kjötiðnaðarstöð SS. Hvenœr opnaði þessi stöð hér? Hún opnaði frá og með mánaða- mótunum aprfl/maí sl. Formleg ákvörðun um flutning var hins veg- ar tekin í júní 1990, en breytingar og viðbætur við húsnæði hófust hér ekki fyrr en í janúar 1991. Hvað lá að baki þess að það var ákveðið að flytja hingað? Þar má nefna í fyrsta lagi að hér á Hvolsvelli átti félagið mjög gott húsnæði, sem var nýtt sláturhús, en það var ekki í fullri notkun nema fáar vikur á ári. Auk þess var séð fram á minnkandi sauðfjár- slátrun þannig að önnur sláturhús SS gætu annað þeirri slátrun sem hér fór fram. Þá var húsnæðið á Skúlagötu orðið óhentugt, og það fyrir nokkru, og ákveðið hafði ver- ið að láta það víkja fyrir nýju skipu- lagi á þessu svæði. Síðast en ekki síst var svo það að nýbygging SS í Laugarnesi reyndist félaginu fjárhagslega ofviða. þannig að það þurfti að losa sig við hana. Jafnframt þótti það húsnæði fullstórt miðað við væntanlega vinnslu. Hvaða starfi gegndir þú áður en flutt var hingað? Þá var ég verksmiðjustjóri hjá Kjötiðnaðarstöð SS við Skúlagötu í Reykjavík en ég er kjötiðnaðar- maður að mennt.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.