Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 19

Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 19
23.’91 FREYR 927 Sáning og uppeldi á gúrkum, tómötum og papriku Fyrri hluti eftir Garðar R. Árnason 1. Frœ a. Gúrkur. Gúrkufrœ er stórt og eru um 30-40 frœ í hverju grammi. Þau spíra yfirleitt vel, með 90-95% spírun og halda spírunarmœtti sínum í 3-4 ár. Einungis œtti að sá góðum og óskemmdum frœjum. Ekki er óalgengt að flokka þurfi um 6-7% af frœjunum burtu. Þrátt fyrir góða flokkun fræj- anna við sáningu, verður að gera ráð fyrir einhverjum afföllum (t.d. um 10-13%), þar sem sum fræin spíra ekki og önnur gefa veikburða plöntur. í heild má oft reikna með um 25 góðum plöntum úr einu grammi af fræjum. b. Tómatar. í einu grammi eru um 200-300 fræ. Þau spíra venju- lega vel, með 93-98% spírun og halda þau spírunarmætti sínum í allt að 5 ár. Ætíð verður að gera ráð fyrir einhverjum afföllum, þar sem sum fræin spíra ekki og önnur gefa veikburða plöntur. I heild má oft reikna með um 150-200 góðum plöntum úr einu grammi af fræj- um. c. Paprika. Fræið er svipað og tómatafræ í útliti, en það er stærra og svolítið sléttara. í einu grammi eru um 110-130 fræ. Fræin inni- halda mikið af olíum og geta þau haldið spíurnarmætti sínum í 3-4 ár. Ætíð verður að gera ráð fyrir einhverjum afföllum, þar sem sum fræin spíra ekki og önnur gefa veikburða plöntur. I heild má oft reikna með um 80-100 góðum plöntum úr einu grammi af fræj- um. 2. Sáning Ýmist er dreifsáð í bakka, litlar hvítmosatöflur (Sphagnum) t.d. Jiffy 7, litla potta, steinullarkubba (t.d. 85x85x75 mm) eða beint í 12 Garðar R. Árnason. cm potta. Ef sáð er í steinull- arkubba, þarf að vökva þá áður vel upp með veikri áburðarlausn (leiðnitala 1,7-1,8 og sýrustig um 5,0). Þegarræktunin á að fara fram í steinull er best að sá í steinull- arkubba, en ef hún á að fara fram í vikri tel ég heppilegast að sá í vikur eða torfmold. Einstaka garðyrkju- menn dreifsá í bakka, sem er í sjálfu sér nothæf aðferð, en þá er ekki hægt að koma í veg fyrir meiri eða minni rótarskemmdir við dreifsetningu eða pottun. Draga mætti úr rótarskemmdunum með því að sá fræjunum með ákveðnu millibili (t.d. 3x3 cm) í bakkana í stað þess að dreifsá. Að lokinni sáningu er fræið hulið með 0,5 cm sand- eða vikurlagi, eða 1 cm torf- moldarlagi, vökvað varlega og plast breitt yfir sáninguna. a. Gúrkur. Sökum þess hve við- kvæmt rótarkerfi plantnanna er, er ekki ráðlegt að dreifsá í bakka. 3. Spírun Æskilegt er að fræin spíri bæði sem fljótast og sem jafnast, m.a. til að draga úr hættunni á sjúkdómum. a. Gúrkur. Heppilegur spírun- arhiti er hár, eða 26-28 °C, bæði í rótarbeðnum og lofti, og spíra fræ- in þá á um 40-50 klst. Spírunarhit- inn ætti aldrei að fara undir 20 °C. b. Tómatar. Heppilegur spírun- arhiti er 22-24 °C, bæði í rótar- beðnum og lofti, og spíra fræin þá á 4-5 dögum. Of hár spírunarhiti eykur hættuna á „jólatrjám". c. Paprika. Heppilegur spírun- arhiti er hár, eða 24-25 °C, bæði í rótarbeðnum og lofti, allan sólar- hringinn og spíra fræin þá á um 8- 10 dögum. 4. Pottun Mikilvægt er að draga ekki um of að potta plöntunum í stærri potta, þ.e.a.s. ef ekki var sáð beint í 12 cm potta. Ef sáð var í hvítmosatöfl- ur eða steinullarkubba, mætti miða við að potta plöntunum um leið og ræturnar byrja að vaxa út úr þeim (oft eftir um 1-2 vikur frá

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.