Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 27
23.’91
FREYR 935
Skýrsla Félags hrossabœnda
starfsárið 16. nóv. 1990 til 15.
nóv. 1991
Efnisyf irlit.
1. Nýtt samkomulag við BÍ.
2. Störf starfsmanna. G.B. og H.F.
3. Reiðhrossaverslun, fjöldi, útfl.
3.1. Sölusamtök ísl. hrossabænda.
3.2. Markaðsnefndarfundur/útflytj.
3.3. Viðmið. verð/reiðhest. hrossabeit.
— Lágmarksverð kynbótahrossa.
— Útfl. lög. skattar, toilar.
3.4. Equitanasýningin f Essen.
I. Nýtt samkomulag við B.í.
12.12.1990.
I samræmi við samþykkt síðasta
aðalfundar F.hrb. var unnið að því
við stjórn BÍ að ná samkomulagi
um útgáfu upprunavottorða og
meðferð á útflutningsstimpli.
Undanfari þessa máls var einhliða
uppsögn stjórnar BÍ á samkomu-
lagi við stjórn F.hrb. frá 3. mars
1988.
Samkomulag um þessi mál var
undirritað 12.12.1990. Það fjallaði
um að starfsmaður F.hrb. myndi
hafa aðsetur á 3. hæð Bændahall-
arinnar og hafa aðgang að gögnum
BÍ varðandi gerð útflutningsskjala
og upprunavottorða frá áramótum
1990/1991. Jafnframt að Gunnar
Bjarnason hætti störfum sem út-
flutningsráðunautur F.hrb. og að
hrossaræktarráðunautar BÍ tækju
tækju við undirritun vottorða 1.
maí, svo og að gjald til BÍ af hverju
vottorði myndi hækka og verða 1/10
af gjaldtöku. Þá var einnig gert
samkomulag um það að stjórnir BÍ
og F.hrb. myndu vinna að því við
landbúnaðarráðherra að ríkis-
stjórnin heimilaði fjárveitingu til
F.hrb. sem samsvaraði ráðningu
eins manns, sem ^vari til þeirrar
upphæðar sem ríkið greiðir búnað-
Fyrri hluti.
3.5. Aðild F.hrb að FEIF-nefndinni.
3.6. Styrkir til markaðsöflunar.
3.7. Skil F.hrb. á sjóðgjöldum.
4.1. Málefni hrossaræktar Búfj.r.s.
4.2. Hrossaræktarnefndin.
5. Hrossakjötsverslun/verðlagning.
6. Útflutningur hrossakj. til Japan.
6.2. Verðlagning og kaupendur.
7. Ýmis sérverkefni: Flugfax hf.
7.2. Reiðskólinn hf.
arsamböndum vegna launa og
ferðakostnaðar héraðsráðunauta,
þ.e.a.s. 65% af kostnaði. F.hrb.
hefur margt áréttað þessa ósk við
ráðherra og ráðuneytisstjóra, án
árangurs.
í samræmi við samkomulagið
varð breyting á starfi starfsmanna
F.hrb.
II. Störf starfsmanna F.hrb.
Gunnar Bjarnason var útflutnings-
ráðunautur F.hrb. til 30. apríl, en
1. maí fékk hann nýtt erindisbréf
sem starfsmaður í hlutastarfi við að
ljúka síðasta bindi Ættbókar og
Sögu, sem kemur út í desember
með öllum ættbókarfærðum hross-
um á árunum 1990-1991. Ennfrem-
ur er hann ráðgjafi F.hrb. varðandi
útflutningsverslun og kynningar-
starf erlendis.
Hallveig Fróðadóttir vann eins
og síðasta ár í hálfu starfi hjá
F.hrb. Hinn 1. janúar flutti hún
með skrifstofu til BÍ og fékk nýtt
erindisbréf í samræmi við sam-
komulag F.hrb. og BÍ. Frá sama
tíma var hún ráðin í hálft starf hjá
Framleiðsluráði landbúnaðarins
og hætti frá sama tíma hálfu starfi
sem hún hafði hjá Flugfaxi hf. Eins
7.3. Tryggingarmál.
7.4. Bjargráðasjóðsgjald o.fl.
7.5. Blóðrannsóknir/örmerkjakerfi.
7.6. Erindi frá landbúnaðarráðuneyti.
7.7. Fundir með landbúnaðarráðherra.
7.8. Stéttarsambandsfundur o.fl.
fundir.
8. Fjármál F.hrb. Yfirlit.
9. Félagsstarfið, fréttabréf o.fl.
10. Lokaorð.
og áður sér hún um gerð uppruna-
vottorða og aðstoðar útflytjendur
við útflutning með leiðbeiningar-
starfi. Á árinu var tekin upp ný
aðferð við gerð upprunavottorða,
sem kemur alveg í veg fyrir mis-
notkun, sem spurnir voru um.
Vottorðin eru gegnumplöstuð með
sérstakri vél sem F.hrb. keypti.
Kostnaður á vottorð vegna þessar-
ar plöstunar er 5 DM sem er kostn-
aðarauki, sem útflytjendur og
kaupendur hafa sætt sig við. Hall-
veig hefur í auknum mæli tekið
þátt í hinum ýmsu störfum, s.s.
vegna undirbúnings Equitana sýn-
ingarinnar, verið ritari á ýmsum
fundum, séð um bréfaskriftir við
útlendinga og tekið á móti mörg-
um útlendingum. Pá sér hún um
innheimtu stofnverndarsjóðsgjalds
og annarra sjóðagjalda. Það verk-
efni krafðist tölvukaupa með „Op-
us“ bókhaldskerfi til að hægt væri
að halda nákvæmlega utan um við-
skiptamenn, sem eru miklu fleiri
en áður, m.a. vegna virðisauka-
skattslöggjafar. Sömuleiðis voru
tölvukaup nauðsynleg til að hægt
væri að tengjast með nettengingu
upplýsingabanka BÍ um öll skráð
hross. í undirbúningi er hönnun
forrits til upprunavottorðagerðar.