Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 28

Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 28
936 FREYR 23.'91 III. Reiðhrossaverslunin. Á síðasta verðlagsári, 1990/1991, voru flutt út 1915 hross, þar af 81 óvanaður hestur, 885 hryssur og 999 geltir hestar. Hér er um áfram- haldandi aukningu að ræða, sem að verulegu leyti er að þakka markvissu og góðu starfi útflytj- enda. Útflutningsaukning á síð- ustu verðlagsárum hefur verið eft- irfarandi: 1989/1990; 1308 hross, 1988/1989; 806 hross, 1987/1988; 765 hross, 1986/1987; 613 hross, 1985/1986; um 500 reiðhross og verðlagsárin þar á undan milli 250 og 300 hross árlega. I ár stefnir í sama útflutning, því að frá 1. janú- ar til 31. október hafa verið flutt úr 1507 hross. Á þessu ári er merkjan- leg minnkun í útflutningi óvanaðra hross. Á verðlagsárinu 1990/1991 voru flutt úr 889 hross til Þýskalands, 580 til Svíþjóðar og 446 hross skipt- ust á önnur lönd, þar á meðal 40 hross til Bandaríkjanna og 8 hross til Englands, en það er nær ónumið land í hrossaútflutningnum og er nauðsyn að vinna markvisst að út- flutningi þangað. Helstu útflytj- endur á verðlagsárinu voru: Sig- urður Ragnarsson (493), Gunnar Arnarsson (421), Hinrik Bragason (388), Sigurbjörn Bárðarson (116) og Ásgeir S. Herbertsson (102). Einn útflytjandi, Sigurður Ragnarsson /Faxatorg, hefur ekki getað staðið í skilum með greiðslur á sjóðagjöldum, en þess er vænst að full skil verði gerð, þannig að komist verði hjá innheimtuaðgerð- um, því að fullar ábyrgðir eru fyrir þessum skuldum. 3.1. Sölusamtök íslenskra hrossabænda, EDDA-HESTAR, voru stofnuð í mars 1991 með yfir 100 félagsmönnum og innborguðu hlutafé um kr. 12 milljónum. For- maður var kosinn, Einar G. Bolla- son, varaform.: Jóhann Pétur Sveinsson, gjaldkeri: Viðar Hall- dórsson, ritari: Kjartan Georgsson og meðstjórnandi: Reynir Aðal- steinsson. í varastjórn: Bergur Jónsson, Guðmundur Viðarsson og Jóhann Þorsteinsson. Skoðun- armenn hrossa og trúnaðarmenn eru: Jóhann Þosrsteinsson, Mið- sitju f. Norðuland, Bergur Jónsson, Ketilsstöðum f. Austur- land, Guðmundur Viðarsson, Skálakoti f. Suðurland, Viðar Halldórsson f. Reykjavík og Aðal- steinn Reynisson, Sigmundarstöð- um f. Vesturland. Samtökin hafa tekið á leigu búgarðinn Kaufungen í Þýskalandi til að koma þar upp sölumiðstöð og stefnt er að því að koma upp sölumiðstöð í Englandi. Fyrsta sendingin fór utan 9. októ- ber en í þeim mánuði fóru utan 84 hross á vegum samtakanna. 3.2. Markaðsnefnd F.hrb. hélt fund með útflutningsaðilum 7. febrúar þar sem rætt var um helstu mál útflutningsins. Útflytjendur drógu í efa gagnsemi nýrra sölu- samtaka á markaðssvæði sem Is- lendingar hefðu þegar byggt upp og lifðu á. Eðlilegra hefði verið að beina kröftum að Englandi og- Bandaríkjunum. Innheimta sjóða- gjalda, einkum til Stofnverndar- sjóðs, var gagnrýnd og sömuleiðis kynntar tillögur F.hrb. um lág- ntarksverð á útfluttum kynbóta- hrossum, sem talið var að hindraði verulega verslunina. Kynnt var beiðni Lífeyrissjóðs bænda um að útflytjendur innheimti 1,25% líf- eyrissjóðsgjald af framleiðendum. í framhaldi af þessari umfjöllun kom fram það álit markaðsnefndar að framleiðendur, þ.e.a.s. seljend- um sem væru nú í flestum tilfellum skráðir útflytjendur, bæru ábyrgð á greiðslu sjóðagjalda, ef ekki væri um annað skriflega samið, en greiðslur fyrir útflutningspappíra, upprunavottorð o.fl. bæri kaup- endum að greiða. Þá var vitnað í lög nr. 64/1958 með síðari breyt- ingum um útflutning hrossa, en þar segir orðrétt í 3. gr. „Embættis- dýralæknar skulu hver í sínu um- dæmi skyldir til að annast skoðun á útflutningshrossum. Landbúnað- arráðherra ákveður þóknun fyrir skoðun hrossanna og eftirlit með útflutningnum, og greiðist hún úr ríkissjóði.“ Markaðsnefnd bauðst til að taka reikninga fyrir dýra- læknakostnaði frá útflutningsaðil- urn og láta reyna á það með samn- ingum eða málarekstri að fá þá reikninga greidda. Enginn útflutn- ingsaðili hefur enn viljað láta á þetta reyna. Þá var rætt um fulln- aðarskoðun útflutningshrossa í heimahéraði, sem reynt hefur ver- ið að fá fram á árinu. Einnig var rætt um nauðsyn þess að fá flutning á sem lægsta verði og að tryggð verði næg samkeppni á flutnings- leiðum. Allur áfallinn kostnaður yndi upp á sig auknum kostnaði kaupenda, sem yrðu að borga með áföllnum VSK eða tollum um 25%. ^ 3.3 Árlegur markaðsnefndar- fundur F.hrb. var haldinn 7. febr- úar sem fjallaði m.a. um eftirfar- andi verðlagningu að beiðni stjórnar F.hrb. sem var endanlega afgreidd eftirfarandi og kynnt í dreifibréfi F.hrb.: Viðmiðunarverð á reiðhestum 1991. Eftirfarandi viðmiðunarverð var samþykkt hjá stjórn og markaðs- nefnd á fundum 7. febr. sl. a) Ótamin og einhæf hross frá kr. 80.000,- b) Töltgenghross frákr. 100.000,- c) Góðirtöltarar frákr. 150.000,- d) Gæðingar frákr. 200.000,- Verðviðmiðun um hrossabeit 1991. Mánuðina júní til og með nóvem- ber: kr. 750,- pr. mánuð. Aðra mánuði kr. 2.250,- pr. mánuð, enda sé þá hrossunum gefið með beit eftir þörfum. Á þetta verð komi 30% hækkun sé um stóð- hestagirðingu að ræða eða sérstök greiðsla fyrir ferðahesta á sumrin. Séu tekin fleiri hross en 5 frá sama aðila, skal veita 30% afslátt á verði, þ.e.a.s. þá sé verð pr. sum- armánuði 525,- kr, en aðra mánuði 1575,-. Tekið skal fram að eigandi ber ætíð ábyrgð á sínu hrossi, nema um annað sé gerður skriflegur samningur, milli eiganda hross og þess aðila sem tekur hross í vörslu.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.