Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 30
938 FREYR
23.'91
Dagana 13. til 21. aprfl 1991 var
Equitana-sýningin haldin í Essen í
Þýskalandi, og að þessu sinni voru
íslendingar með sér aðstöðu á sýn-
ingunni. Undirbúningsvinna fyrir
sýninguna hófst vorið 1990. Sýn-
ingarsvæði íslendinga var alls 300
fermetrar, og tóku 13 íslensk fyrir-
tæki bása á leigu á svæðinu. Finnur
Fróðason, innanhússarkitekt, var
fenginn til að hanna svæðið, og er
því var lokið var leitað eftir tilboð-
umí að byggja upp svæðið. Fjögur
tilboð bárust og var ákveðið að
taka tilboði Herberts Ólasonar í
uppbygginguna sem og tilboði
hans í veitingarekstur á svæðinu.
Starfsmenn Félags hrossabænda
á Equitana voru Hallveig Fróða-
dóttir, Kjartan Georgsson og
Sigríður Pétursdóttir. Einnig fóru
út 5 knapar á vegum Félags hrossa-
bænda. Félag hrossabænda flutti út
tvo hesta til þátttöku í hestasýning-
unum á Equitana, en önnur hross í
sýningunum komu frá Evrópu,
sem og flestir knaparnir.
Reynir Aðalsteinsson sá um
hestasýningarnar sem tókust mjög
vel. Hins vegar reyndist sýningin
mjög dýr F.hrb. þannig að stjórn
F.hrb. hefur ákveðið að standa
ekki oftar að Equitanasýningunni
sem framkvæmdaraðili heldur
styrkja aðila sem vilja vinna að
sýningunni með fyrirfram ákveðn-
um framlögum. Sveinbjörn Dag-
finnsson, ráðuneytisstjóri, hafði
boð fyrir áhugamenn um íslenska
hestinn í nafni landbúnaðarráðu-
neytisins, sem Þjóðverjar og aðrir
mátu sérstaklega. Að kvöldi síð-
asta sýningardags komu Þjóðverj-
ar og íslendingar saman til fundar
og ákváðu að skipa 6 manna fram-
kvæmdanefnd fyrir næstu Equit-
ana-sýningu, þrjá frá hvoru landi.
Óskað var eftir að landbúnaðar-
ráðuneytið/Markaðsnefnd land-
búnaðarins, F.hrb. og hestaleig-
urnar myndu hver um sig tilnefna
fulltrúa. Kjartan Georgsson hefur
verið tilnefndur af stjórn F.hrb. til
að starfa að þessum málum áfram.
Á sýninguna sem stóð yfir í 10 daga
koma um 350.000 áhorfendur. Þar
hafa nær öll hestakyn sína sýning-
arbása og sýna flestir með meiri
tilkostnaði en íslendingar. Þrátt
fyrir það hafa íslensku sýningarat-
riðin verið valin í hópi þeirra bestu
og lögð hefur verið áhersla á það
frá eiganda sýningarinnar að ís-
lensku hestarnir væru með og nytu
góðrar aðstöðu.
3.5. Þrátt fyrir að F.hrb. eigi að-
ild að FEIF-nefndinni með B.í. og
L.H. sem þarf að starfa, m.a.
vegna Evrópumóta/heimsmóta ís-
lenska hestsins annað hvert ár,
hefur samstarf við fulltrúa F.hrb.,
Magnús Hákonarson, verið í lág-
marki af samstarfsaðilum.
3.6. Tekið hefur verið jákvætt á
móti öllum erindum einstaklinga
og félaga um styrki til markaðsöfl-
unar erlendis. Mælt var með að
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
styrkti Átaksverkefni Vestur-
Húnvetninga um hrossasölu og
það verkefni einnig styrkt, sömu-
leiðis var mælt með umsókn SIH
um að hefja verslun til Englands og
stofna þar sölumiðstöð og er áætl-
að að veita fé til þess viðfangsefnis.
Sérstök hestasýning sem fram fór í
Svíþjóð var styrkt og eins var
landslið íslands á Evrópu/heims-
mótinu styrkt, sem samsvaraði
gjöldum vegna upprunavottorða,
framleiðsluráðs- og búnaðarmála-
sjóðsgjalda. Þá var ákveðið að
styrkja Paul Rask og Steen Gees
Christensen sem hefja lengsta reið-
túr sögunnar á íslenskum hestum
1. mars 1993, en þeir áætla að fara
á einu og hálfu ári frá Danmörku
til Kína.
3.7. Á síðasta verðlagsári skilaði
F.hrb. eftirfarandi sjóðagjöldum
af útflutningsversluninni: Til
Stofnverndarsjóðs kr. 6.481.025
(árið áður: 3.057.139), til Fram-
leiðsluráðs kr. 300.381 (206.974)
og til Búnaðarmálasjóðs kr.
2.087.518 (1.433.704). Þá var
einnig greitt til BÍ kr. 191.853
(57.563) en það gjald er 5 DM af
æxlunarfærum hrossum til 1. maí.
en eftir það 5 DM af öllum útflutt-
um hrossum.
Stofnverndarsjóðsgjald er 20%
af ógeltum hestum og 10% af öll-
um hryssum, Framleiðsluráðsgjald
er0,25% af heildsöluverði hestsins
og Búnaðarmálasjóðsgjald er
2,025% (0,2% til Stofnlánadeild-
ar,0,075% til B.Í.,0,5% tilbúnað-
arsambanda, 0,25% til Stéttarsam-
bands bænda og 1% til F.hrb.)
IV. Málefni hrossarœktarinnar
4.1. Leitað var eftir staðfestingu
BÍ og landbúnaðarráðherra á bú-
fjárræktarsamþykkt fyrir F.hrb.
sem samþykkt var samhljóða á síð-
asta aðalfundi félagsins. Formlegt
svar hefur ekki borist frá aðilum.
4.2. Veruleg mannaskipti urðu í
Hrossaræktarnefnd BI. Tveir
ráðunautar, Guðmundur Jónsson
og Helgi Eggertsson, hættu störf-
um og annar fulltrúi F.hrb.,
Halldór Gunnarsson, óskaði eftir
við stjórn félagsins á stjórnarfundi
6. febrúar að verða leystur frá
störfum í nefndinni. Ákveðið var
að verða við því og tilnefna fyrsta
varamann úr hópi bænda til að
taka sæti hans, Þóri ísólfsson. Á
næsta stjórnarfundi 24. apríl lagði
Halldór Gunnarsson fram afrit af
bréfi til landbúnaðarráðuneytis-
ins, sem skýrði ósk hans um að
hætta störfum, þar sem eftirfar-
andi kom m.a. fram:
“Undirritaður var á síðasta ári
kosinn af Búnaðarþingi eftir til-
nefningu frá Félagi hrossabænda
til að starfa í hrossaræktarnefnd
BÍ, sem á að starfa samkvæmt lög-
um nr. 84/1989.
Eftir að hafa starfað í nefndinni í
tæpt ár, tel ég fullreynt að starfs-
hættir nefndarinnar undir forystu
hrossaræktarráðunauta BÍ sam-
rýmist ekki þeim ákvæðum lag-
anna, sem kveða á um hlutverk
búfjárræktarnefnda né heldur hafa
vinnubrögð ráðunautanna varð-
andi nefndarstörfin verið ásættan-
leg, að mínu mati.
Á aðalfundi F.hrb. 16. nóvem-