Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 31
23.’91
FREYR 939
^YRAGARÐ^
- » &
I LAUGARDAL
Kýr óskast keypt
Óskum eftir sérlega fallegri og vel byggðri kú af bœ þar
sem heilbrigði nautgriþa hefur verið í góðu iagi.
Borgum vel fyrir góðan grip.
Upplýsingar veitir Sigurjón Blófeld í síma 91-32533.
ber var 6 tillögum beint til hrossa-
ræktarnefndarinnar, sem kveða
allar á um verulegar breytingar við
dómsstörf. Þessar tillögur hafa
ekki fengist teknar til umfjöllunar.
Þann 10. apríl 1990 sendi undir-
ritaður nefndarmönnum hrossa-
ræktarnefndarinnar tillögur um
reglugerðir og reglugerðarbreyt-
ingar vegna laganna nr. 84/1989.
Þessar tillögur hafa ekki fengist
teknar til umfjöllunar.
Síðasta sumar varð mjög mikil
óánægja hrossabænda og hesta-
manna um dómstörf ráðunaut-
anna, sem leiddi til fundarhalda
um allt land og síðan fundar 7.
ágúst 1990 með fulltrúum lands-
hluta og fulltrúum í hrossaræktar-
nefndinni með stjórn BÍ, sbr. með-
fylgjandi fylgiskjal. Tillögum um
að endurskoða kynbótadóma og
að kynbótadómar 1990 væru sér-
staklega skoðaðir með tilliti til
ósamræmis og einnig vegna þess að
eldri byggingareinkunnir hrossa
hefðu verið lækkaðar, var vísað af
stjórn BI til nefndarinnar. Þessar
tillögur hafa ekki fengist teknar til
umfjöllunar. Mörg önnur brýn út-
lausnarefni bíða nefndarinnar.
Ég tel mér skylt að skrifa land-
búnaðarráðuneytinu bréf um þessi
mál og segja frá því hversu alvarleg
þau eru, eins og meðfylgjandi bréf
til stjórnar BÍ ber með sér. Það er
skoðun mín að þessi mál verði ekki
leyst með öðrum hætti en þeim að
leiðbeiningarþjónusta bænda verði
tengd viðkomandi búgreinafélög-
um beint.“
Á fundi Hrosaræktarnefndar-
innar 29. apríl voru tillögur af-
greiddar með atkvæðagreiðslu og
allar tillögur sem höfðu borist
nefndinni um breytingar eða end-
urskoðun á reglum um dóma og
framkvæmda þeirra var vísað frá.
Frh. í nœsta blaði.
Rannsóknir með tilraunadýr.
Frh. afbls. 944.
festa í tilraunum. Þess vegna væri
mikilvægt að huga að slíkum hæfn-
isþáttum hjá stofnum þar sem
úrval er stundað. Náttúruúrval
leiðir því einnig til að skyldleika-
hnignun verður minni en ella.
Þetta fyrirbæri leiðir jafnframt til
að svörun við vali fyrir aukinni og
minni frjósemi verður ekki sam-
hverf (symmetrical) heldur yfir-
leitt meiri í neikvæða átt.
Gerð var grein fyrir niðurstöð-
um úr fjölmörgum úrvalstilraunum
fyrir ýmsa eiginleika hjá tilrauna-
dýrum. Að ýmsu leyti eru þar at-
hyglisverðastar tilraunir með mýs
sem í hefur verið bætt erfðavísum
fyrir myndun vaxtarhormóna
(risamýs). í þessum tilraunum vek-
ur athygli að við úrval í slíkum
stofnum kemur ekki fram sá fjöldi
einstaklinga, sem hafa hinn nýja
erfðavísi, og vænta má. Þetta er
mjög eindregin bending um al-
menn neikvæð áhrif slíkra erfða-
vísa á lífsþrótt þeirra einstaklinga
sem þá hafa.
Heimsmet í f rjósemi
Gylta ein í Kína hefur að sögn
eignast 372 grísi í 16 gotum sem er
að meðaltali 23,2 grísir í goti. Er
þetta talið algert met hjá hinum
frjósömu, kínversku gyltum.
Stærsta einstakt got var 33 grísir
segir í frétt í tímaritinu Norden, og
jafnframt að gyltan hafi verið svört
Jiaxing-gylta af Wongton kyni, 80
kg þyng og með 18 spena.