Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 32
940 FREYR
23.’91
Fiskeldi Eyjafjarðar:
Seiðauppeldi til matfiskeldis
Fimm þúsund lúðuseiði alin upp á þessu ári og á því nœsta verða
vœntanlega alin upp fyrstu seiðin til matfiskeldis.
Ólafur Halldórsson framkvœmdastjóri Fiskeldis Eyjafjarðar f viðtali.
Á þessu ári voru alin upp um 5000 lúðuseiði hjá Fiskeldi Eyjafjarðar. Á íslandi er nú
annað mesta eldi lúðuseiða í heiminum, en rannsóknir eru stundaðar á lúðueldi í fimm
löndum.
Seiðin voru flutt í tilraunastöð
Hafrannsóknastofnunar í Grinda-
vík nú í haust, þar sem stundaðar
eru vaxtar- og fóðurrannsóknir.
Pess er vænst að uppalin seiði á
næsta ári verði hin fyrstu sem fara í
matfiskeldi hérlendis. Fiskeldi
Eyjafjarðar hefur nú 30-50 lúður til
klaks.
„Þetta byrjaði árið 1987. Pá
komum við hingað tveir, ég og
Erlendur Jónsson, en við unnum á
Hafrannsóknastofnun áður,“
sagði Ólafur Halldórsson. fram-
kvæmdastjóri Fiskeldis Eyjafjarð-
ar.
„Ég hafði þá fylgst með því sem
var að gerast í Noregi í eldi á
sjávarfiskum og fannst að eldi á
lúðu og öðrum fiskum væri
kannski eitthvað sem við ættum að
líta á.
Ég kynnti þessa hugmynd fyrir
Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar og
þáverandi framkvæmdastjóra
þess, sem heitir Ingi Björnsson, en
hann kynnti síðan þessa hugmynd
meðal fólks og fyrirtækja hér í
Eyjafirði. Pað varð úr að um mitt
ár 1987 var stofnað hér fyrirtæki,
„Fiskeldi Eyjafjarðar hf.“
Fyrsta árið var markmiðið að
gera úttekt á því hvort og þá hvern-
ig yrði staðið að því að byggja upp
eldi sjávarfiska hér í Eyjafirði. Við
höfðum þá aðallega hug á lúðu,
einnig vorum við spenntir fyrir
þorski.
Við eyddum einu ári í rannsókn-
ir hér í firðinum til þess að ganga úr
skugga um hvort þessi staður hér
hentaði fyrir starfsemi af þessu tagi
og miðuðum það þá við aðstæður í
Noregi, þar sem þessir hlutir eru
lengst komnir.
Við rannsökuðum aðstæður og
umhverfi hér í firðinum, mældum
hita, seltu og súrefni og fylgdumst
með breytingum í firðinum yfir
heilt ár. Við skoðuðum aðstæður
hér á Hjalteyri, hvort og hvernig
þessi mannvirki sem hér eru gætu
nýst. Og síðast en ekki síst sóttum
við smálúðu í Breiðafjörð til þess
að sjá hvernig hún þrífist hér fyrsta
veturinn.
Niðurstöðurnar kynntum við
svo á aðalfundi fyrirtækisins um
mitt ár 1988 og þar var ákveðið að
halda áfram og byggja upp aðstöðu
fyrir klak og seiðaeldi. Þegar það
ár keyptum við helminginn af
mjölskemmunni á Hjalteyri, og
hafist var handa um uppbyggingu
fyrirtækisins. Síðan sóttum við