Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 33
23.’91
FREYR 941
klakfisk, stórar lúður, og settum
upp bráðabirgðaaðstöðu fyrir
klak.
Árið 1989 fengum við nokkra
lítra af hrognum og tókst að klekja
út nokkrum tugum þúsunda af
kviðpokalirfum. Þær lifðu fram að
startfóðrun, en þá drápust þær.
Árið eftir gjörbreyttum við hér
allri aðstöðu og betrumbættum
hana. í fyrra fengum við minna af
hrognum heldur en við áttum von
á. Við urðum einnig fyrir óhöpp-
um, eins og alltaf má búast við, en
okkur tókst þó að halda lífi í tveim-
ur seiðum og eru það þá fyrstu
lúðuseiðin sem alin eru upp á Is-
landi í eldisstöð. Það er 5 árum
síðar að Norðmönnum tókst að ala
upp fyrstu seiði sín.
Síðastliðið vor fengum við mikið
af hrognum. Þess vegna reiknuð-
um við með að það tækist að ala
upp talsverðan fjölda lúðuseiða.
Vegna óvæntra atvika urðu allmik-
il afföll á seinna skeiði lirfueldis-
ins, og lifðu einungis 5000 seiði
myndbreytinguna.
Norðmenn ólu upp sín fyrstu
seiði árið 1985, fyrstir manna í
heiminum. Skotar urðu næstir,
með nokkur seiði árið 1987. Norð-
menn ólu í fyrra upp 50-60 þúsund
seiði og í ár reikna þeir með að eiga
100-150 þúsund.
Skotar ólu fyrstu seiði sín árið
1987, þar hefur þróunin verið hæg-
ari en í Noregi en þeir ólu upp um
1000 seiði á þessu ári.
Ég held að við höfum veriö með-
al 10 fyrstu í heiminum að ala upp
lúðuseiði þegar fyrirtæki og rann-
sóknastofnanir eru meðtaldar.“
Ólafur sagði að auk þessara
þriggja landa væru Færeyingar og
Kanadamenn að glíma við þetta en
þeim hefði ekki tekist að halda
seiðum lifandi enn sem komið
væri. Hann sagði að íslendingar og
Norðmenn hefðu gott samband í
þessum málum.
Hvernig er framhaldið hugsað?
„Það er ekki búið að ákveða
neitt í þeim efnum en það er vinna í
Ólafur hugar að lúðuseiðum.
Eldisstöð Fiskeldis Eyjafjarðar er í gamalli mjölskemmu á Hjalteyri við
Eyjafjörð.
gangi þar sem við erum að skoða
möguleika á áframeldi. Þá er verið
að kanna hvort einhver aðstaða sé
til í landinu sem mætti hugsanlega
nýta.“
Eruð þið með einhvers konar
annað eldi?
„Við höfum verið með tilraunir í
smáum stíl með hlýra og steinbít.
Fiskurinn hefur ekkert hrygnt hjá
okkur en við höfum fengið hrogn
utan af sjó og startfóðrað og það
hefur gengið mjög vel. Þau seiði
eru komin í tilraunastöð Hafrann-
sóknastofnunar í vaxtarrannsókn-
Fimm menn vinna nú í stöð Fisk-
eldis Eyjafjarðar á Hjalteyri.
Ólafur sagði að vænta mætti fljót-
lega niðurstöðu um hvort af því
yrði að Fiskeldi Eyjafjarðar, Haf-
rannsóknastofnunin hér á landi,
Hafrannsóknastofnunin í Bergen
og Háskólinn í Gautaborg ynnu
saman að því að rannsaka klakfisk,
einkum lúðu. Til greina hefur
komið að unnið verði að viðfangs-
efnum í eldisstöð á Dalvík þar sem
Ölunn hf. var áður.
J.J.D.