Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 34

Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 34
942 FREYR 23.’91 Hestaleigan á Bjarnastöðum er vinsœl og eftirsótt af ferðamönnum. (Freysmyndir). Með ferðaþjónustu frá 1970 Margrét og Guðmundur á Bjarnastöðum í Hvftársíðu hafa stundað ferðaþjónustu í rúma tvo áratugi Að Bjarnastöðum í Hvítársíðu íBorgarfirði hafa hjónin Margrét Júlíusdóttir og Guðmund- ur Jónsson rekið ferðaþjónustu síðan 7 970, framan af sem hestaleigu. Munu þau hafa verið einna fyrst í Borgarfirði með slíka þjónustu og þó víðar vœri leitað. Guðmundur Jónsson bóndi á Bjarnastöðum sagði í samtali við Frey að þeir sem nýttu sér þessa þjónustu væru helst dvalargestir frá Húsafelli, Svignaskarði, Skorradal og frá öðrum sumar- dvalarsvæðum í Borgarfirði, auk hins almenna vegfaranda. Farnir eru nær eingöngu klukkutíma reið- túrar og gestir eru flestir Islending- ar. Fylgdarmaður er með hverjum hópi. Seinni árin hefur þjónustan aukist og náð til fleiri þátta. Þau Margrét og Guðmundur reka gist- ingu í sumarhúsum en hafa líka skipulagt land undir sumarbú- staðabyggð og leigt einstaklingum og útbúið tjaldstæði í landinu. Þau hafa fram að þessu skipulagt land fyrir fjögur sumarhús á hektara, eða því sem næst 2500 fermetra undir hvern bústað. Leigan er þriggja dilka verð eftir lóðina. Guðmundur sagði að gott sam- komulag hefði orðið við lóðarleigj- endurna um að þeir tækju þátt í kostnaði við vatnsveitu að sumar- bústaðahverfinu. Hann sér um að girða landið og leggja veg að hverri lóð, annað sjá lóðarleigjendur um, t.d. rotþrær við bústaði. Nú er verið að taka nýtt sumar- bústaðasvæði í notkun á Bjarna- stöðum. Aður en þau Guðmundur og Margrét fóru út í þessa þjónustu stunduðu þau hefðbundinn búskap. Nú er enginn nautgripur á bænum og sauðfé heldur færra en áður. Orsökin fyrir þessari nýbreytni sögðu hjónin á Bjarnastöðum að hefði verið að hluta til sú að þau

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.