Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 38

Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 38
Gúmmímottur Þóra Regína Þórarinsdóttir Algengt er að liða-, legg- og klaufskaðar hrjái kýr. í alvarlegum tilfellum geta sár og bólgur leitt til helti. Einnig eru júgurbólga og ýmsar júgursýkingar algengar. Kýr eru á bás allan veturinn sem og hluta sumars. Því er mjög mikilvœgt að aðbúnaður í básum sé sem bestur. Hér skiptir gólfefnið miklu máli. Með góðu gólfefni má draga úr fyrrnefndum skaða og auka vellíðan kýrinnar. Gólfefni - kröfur Kröfur sem gerðar eru til gólfefna í básum eru miklar. Kúnni á að líða vel á því. Það þarf því að vera mjúkt, stamt og einangrandi. Það á að vera endingargott, þar með talið að þola mikið punktálag, mjólkursýrur, þvag og efni sem notuð eru við þrif. Auðvelt þarf að vera að halda því hreinu. Síðast en ekki síst verður verðið að vera hagkvæmt, bæði hvað varðar inn- kaup, lagningu og viðhald. Draumagólfefni kýrinnar LBT í Svíþjóð (Lantbrukets byggnadsteknik) rannsakaði í sam- vinnu við FAL Braunschweig í Þýskalandi hvaða gólfefni kúnum líkaði best. Rannsóknin fór þannig fram að kýrnar gengu lausar og gátu valið sér mismunandi gólfefni til að vera á. Niðurstaðan var í stuttu máli sú að því mýkra sem undirlagið var því betra þótti það. Undartekningarlaust þótti kúm best að vera á bás sem í var þykkt lag af lausu efni er lagðist að skrokknum, svo sem sag og hálmur. Og undantekningarlaust forðuðust þær kalt og hart steypu- gólf. Gólfefni - eiginleikar Til er mikill fjöldi mismunandi gólfefni sem hvert hefur sína kosti og galla. Þessum gólfefnum er hér skipt í fjóra flokka eftir eiginleik- um. a) Hart gólfefni, svo sem stein- steypa og ýmsar harðar plötur. Hörð gólfefni eru yfirleitt end- ingargóð og þægileg í þrifum. Gallinn við þau er sá að þau eru hörð, köld og hál. Á slíkum gólfum er hætta á að kýr skadd- ist. b) Laust efni, svo sem hálmur og sag. Kýr eru mjög hrifnar af lausu efni. Þau eru einangrandi, mjúk og stöm. En þetta er nokkuð dýr lausn, m.a. af því að mikið geymslurými þarf undir það og tímafrekt er að skipta um það. c) Gúmmímottur. Pær eru end- ingargóðar og stamar. Einangr- unargildið og mýktin er í með- allagi. Pær eru þægilegar í þrif- um og lagningu. d) Lagskiptar mottur, þ.e. mottur samsettar úr nokkrum mismun- andi lögum plast- og gúmmí- efna. Algengt er að miðju lagið sé mjúkur hlaupkendur kjarni. Hin ýmsu lög marglaga mott- anna gera þær mýkri og meira einangrandi en gúmmímott- urnar. En ending þeirra er mun slakari. í töflu 1 má sjá niðurstöður úr samanburðarannsóknum sem LBT gerði á ýmsum gólfefnum. Tafla 1. Samanburður ó gólfteppum í fjósbós. Mýkt Viðnám Varma- heldni Ending Þrif Lagn- ing Heilsa Verð Steypa Polyuretan- 1 2-3 2 4 3 3 2 plötur 2 2-3 2+ 4 4 2 2 2 UBO 3 4 3 5 4+ 5 3 2 Cylinder Hálmur, 3+ 4 3 5? 4+ 5 3 2 2-3 kg 4-5 4 5 - - - 4 3-4 Frelén 4 4 5 1 3 5 4 4 Kokos 5 3 5 3 4 3 4 2 UBO og Cylinder eru gúmmímottur en Frelén og Kokos eru marglaga mottur. GV mottur.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.