Freyr - 01.12.1991, Blaðsíða 39
Gúmmímottur.
Það er ekki að ástæðulausu að
gúmmímottur eru mjög vinsælar í
bása, bæði hjá kúm og hestum. I
töflu 1 má sjá að gæði gúmmímott-
anna eru nokkuð góð og heildar-
kostnaðurinn við þær er lítill,
m.t.t. lagningar, endingar og
hreinlætis. Þó að gúmmfmottur
virðist mjög svipaðar eru gæði
þeirra mismunandi. Það sem helst
greinir að eiginleika þeirra er
tvennt. Annars vegar hefur lögun
yfirborðs og botns áhrif á mýktina,
stamleikann og þrifin. Rifflur og
skálar gera mottuna mýkri og
stamari. Djúpar eða þröngar rauf-
ar gera þrifin erfiðari og hvassar
brúnir geta aukið meiðsli, Hins
vegar hefur mismunandi efnasam-
setning gúmmísins áhrif á mýkt,
einangrunargildi, stamleika og
endingu.
GV mottan
Á íslenska markaðnum eru fjöl-
margar gerðir gúmmímotta. Allar
eru þær erlendar hrágúmmímottur
að einni undanskilinni. Gúmmí-
vinnslan hf. á Akureyri framleiðir
GV mottuna úr endurunnu
gúmmíi. Um 85% hráefnis mott-
unnar er gúmmí úr notuðum hjól-
börðum. 15% hráefnisins eru kem-
isk bindiefni. Þrátt fyrir það að GV
mottan sé framleidd úr „úrgangi“
wÉ.
m.
Efrí myndin sýnir Cylinder gúmmí-
mottuna en neðri myndin er af UBO
gúmmímottunni; sjá töflu 1. Báðar
motturnar eru frá Trelleborg.
hefur hún ýmislegt fram yfir er-
lendu motturnar.
* Kemisku bindiefnin gera hana
stamari og meira einangrandi.
* Ending hennar er ekki síðri en
annarra gerða.
* Hún er endurvinnsluvara. Með
notkun hennar í 30 kúa fjós end-
urnýtist um hálft tonn af úr-
gangsgúmmíi.
* Verðið er mjög hagstætt.
Framleiddar eru tvær gerðir af
GVmottunni, þ.e. riffluð motta og
skálamotta. GV mottan er ein-
göngu framleidd í stærðinni 98 x 69
cm, þ.e. tvær mottur þarf á básinn.
Mælt er með því að mottan sé
annað hvort steypt í básinn eða
límd niður. Reynst hefur mjög vel
að líma GV mottuna í bása. Það
auðveldar þrifin á básnum, eykur
hreinlætið, andrúmsloftið í húsinu
verður betra og mottan slitnar
jafnar. Notkun GV mottunnarhef-
ur aukist mjög undanfarin ár, enda
vill fólk meiri gæði á hagstæðu
verði. Síðast en ekki síst er endur-
vinnslan mikilvægur þáttur í hug-
um bænda.
Lokaorð
Gott básagólfefni er mikilvægt fyr-
ir kúabændur. í flestöllum fjósum
landsins eru gúmmímottur. Enda
eru gúmmímotturnar góð vara
með lágan heildarkostnað. En
gúmmímottur eru misjafnar að
gæðum. Mikilvægast er að skoða
útlit mottunnar. Mynstur hennar
verður að stuðla að meiri mýkt,
það má ekki gera þrifin erfið og
brúnir mega ekki vera hvassar því
að það eykur líkur á meiðslum.
Kaup á gólfefni í bása ber að
vanda. Val á GV mottunni er val á
hagkvæmni og gæðum, afrakstur
margra ára þróunarvinnu. En það
er fleira sem okkur ber að hafa í
huga.
Veljum íslenskt - veljum endur-
vinnslu - framtíðarinnar vegna.
Heimild:
Nilsson, Christer, og Walberg, Karin,
1978. Golv í ko- svinstallar. Sveriges
Lantbruksuniversitet: Aktuellt frán
Lantbruksuniversitatet, 264, Teknik.
Uppsala 1978.
Þóra Regína Þórarinsdóttir er iðnrekstr-
arfræðingur og starfar hjá Gúmmívinnsl-
unni hf. á Akureyri.
Hesthúsbás með GV mottum.