Freyr

Árgangur

Freyr - 15.06.1992, Blaðsíða 25

Freyr - 15.06.1992, Blaðsíða 25
Lauslegii uppdiættii sem sýna mismunandi afstööu íbúöaihúsa á lóöum, en afstaöan læöui miklu um tilhögun og nýtingu á spildunni. Stæiö íbúöaihúsa um 10 x 15 m og lóÖa liölega 1000 m2- landstærðin og lögunin að fara nokkuð eftir staðháttum og ekki síst því hversu þörfin er talin knýjandi fyrir skjólgróður. Standi húsið mjög áveðra getur þurft margar skjólraðir trjáa móti aöal- vindáttum til að veita nægilegt skjól og þær þurfa allmikið rými. Eigi matjurtareitir og berjarunnar að skarta á lóðinni, álít ég sjálfsagt að ætla þessum gróðri rými heima við, en hann dregur úr plássinu fyrirannað. Best færi á því, efunnt væri að sleppa girðingu og leysa það mál með girðingu annars staðar. Fyrirkomulag í garðinum Ekki er unnt að gefa einhlíta fyrirsögn um niðurskipan í garð sveitaheimilisins. Ég tel brýnt að hann sé einfaldur í sniðum, þannig að vinna við umhirðu og viðhald verði aldrei mjög íþyngj- andi. Því ber að forðast að dreifa gróðri út og suður í mörg beð, en slíkt virðist allt of algengt. Eins ber að stilla ræktun jurta í hóf, því þær krefjast meiri umhirðu en trjá- kenndur gróður, en þannig er það með allt sem er blómviljugt. Þetta þarf þó ekki aö þýða að garðurinn geti ekki orðið fallegur. Áður en ráðist er í undirbúning er rétt aö setjast niður, grípa blað og blýant, og gera lauslegt uppkast. Sé ein- hver leiðbeiningabók fyrir hendi til að rýna í, má jafnan komast það langt í grófskipulagningu að hægt sé að hefja störf. Á lóðarmörkum er byrjað á því á uppdrættinum að raða niður þeim gróðri sem talinn er þörf fyrir til að gefa sem best skjól. Við verðum þó ætíð að hafa í huga útsýnismöguleika og birtu- skilyrði. Sé landið mjög áveðra eða vindasamt í ákveðnum áttum, þarf kannski fleiri skjólraðir, eins og bent var á áður. Þegar garð- vinna hefst er fyrsta verkið að gróðursetja skjólbelti og koma fyrir nauðsynlegum göngustíg- um, helst hellulögðum og jafnvel rúmgóðum palli og skjólgrindum eða veggjum á sólríkum stað við húsið. Úrval trjógróðurs í sambandi við skjólgróður þarf að kanna gaumgæfilega hvaða gróðurefni muni heppilegast að nota sem skjólgjafa og fóstrur fyrir viðkvæmari gróður inni í garðin- um. Um það er best aö ráðfæra sig við þá sem hafa þekkingu og reynslu. Innlendu tegundirnar birki og reyniviður voru lengi aðaltrjáteg- undirnar í skrúðgarðinum. Gul- víðir og loðvíðir voru einnig nokk- uð algengir. Nú er þetta talsvert breytt. Björkin er að vísu ennþá efst á blaði, þótt hægvaxta sé, en margvíslegar innfluttar tegundir sem reynast bæði harðgerðar og hraðvaxta hafa tekið sér sæti í námunda við björkina. Ákveðnar víðitegundir og klón- ar þeirra eru nú orðnar mest áber- andi. Þær eru margar hraðvaxta og sumar hverjar eru mjög vetrar- þolnar, t.d. viðja sem er fljótvaxin og hefur verið mjög lengi notuð. Innan hennar eru margvíslegar gerðir, sumarþeirra lítt vetrarþoln- ar og hafa þær spillt fyrir öðrum kynjum tegundarinnar, en sum þeirra eru einstaklega góð skjó- lbeltatré. Viðja getur náð allt að 10 m hæð á bestu svæöum hérlendis. Alaskavíðir sem barst hingað fyrst Skjólbelti í GióÖiaistöðinni Rein á Staöaibyggö í Eyjaíiiöi. Þaöan koma plöntui í skjólbelti á bændabýlum í nágienninu. Til vinstii eiu plöntui á þiiðjaáii í uppeldi, en skjólbeltin til hægii og fjæieiu fimm áia. Fieysmynd íiá 1989. J.J.D. 13

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.