Freyr - 15.11.1994, Page 11
mundur var fyrsti jarðfræðingurinn
sem kortlagði setlögin og vann hér
mikið við rannsóknir."
- Veggi safnsins prýða einnig lit-
myndir af svæðinu. Kári hefur í
huga að láta gera póstkort af stein-
gervingum og öðru til þess að selja
ferðamönnunum. Þá hefur fjölskyld-
an útbúið mikið af minjagripum til
þess að selja og kom það vel út. Til
þess getur vetrartíminn nýst vel, en
þetta er á byrjunarstigi og auðvitað
þarf að þróa þá starfsemi.
Það er margt sem hægt er að gera
ef menn virkilega vilja leggja það á
sig og sinna því. Bara það að hafa
safnið opið frá kl. 9.00-21.00 er
mikil yfirlega og ekki gefa allir dag-
ar mikið af sér.
Lofsvert framtak
Jón Eiríksson, jarðfræðingur á
Raunvísindastofnun Háskólans, senr
hefur unnið nrikið við rannsóknir á
Tjömeslögum samdi nýlega greinar-
gerð unr steingervingasafnið og seg-
ir svo í lokaorðum umfjöllunar sinn-
ar:
„Með því að opna steingervinga-
safn á Hallbjamarstöðum hafa ábú-
endur sýnt lofsvert framtak í þá átt
að upplýsa ferðafólk um Tjörnes og
veita því aðgang að fallegum ein-
tökum af steingervingum dýra og
plantna. Telja má líklegt að margir
verði til þess að skoða safnið fremur
en klöngrast um bakkana og krafsa í
þá með misjöfnum afleiðingum
Opnun steingervingasafnsins er því
jákvætt skref í þá átt að minnka
ágang og varðveita lögin. Óhætt er
að segja að vel hafi tekist til nreð
uppsetningu safnmuna en þar kemur
fram metnaður til að veita réttar og
greinargóðar upplýsingar."
Hver sveit hefur sín sérkenni
Þetta er enn eitt dæmið um það
hvað íslensk sveitamenning á sér
margar hliðar og eftir spjallið í safn-
inu göngum við heim í bæ og
ræðum um íslenskan landbúnað,
grásleppuvertíðina og Harmoníku-
félag Þingeyinga því að „nikkan“ er
á stofugólfinu.
Kári er alvanur að spila fyrir dansi
og það gera fleiri Tjömesingar.
Nálægðin við Húsavík hefur sín
áhrif og margir íbúar sveitarinnar
Minjar úr surtarbrandsnámunum.
hafa þar atvinnu að hluta. Það erfiða
við grásleppuna er að sauðburðurinn
er á sama tíma og dagarnir því oft
langir og strangir. Heitasta ósk
sveitarbúa er sú að fá betri veg með
bundnu slitlagi og myndi það breyta
miklu ef litið er til framtíðar.
Eftir veislukaffi hjá Fanneyju er
kornið að lokum heimsóknarinnar.
Sveitir landsins eiga að sönnu marg-
ar myndir og það er ástæða til þess
að hvetja alla sem leið eiga um Tjör-
nes að líta við á Hallbjarnarstöðum,
njóta gestrisni fjölskyldunnar og
skoða safnið.
Atli Vigfússon.
MOLflR
Sólbrunnin jólatré
Síðastliðið sumar var þurrt og
heitt á meginlandi Evrópu og það
var m.a. dönskum jólatrjáaframleið-
endum erfiður ljár í þúfu. Segir í
frétt frá Danmörku að mikið sé um
að hinar sígrænu nálar barrtrjáa séu
brúnar orðnar vegna sólbreiskjunnar
sem var í sumar. Spáð er 10% verð-
hækkun á dönskum jólatrjám af
þessum sökum.
22'94 - FREYR 827