Freyr - 15.11.1994, Síða 17
Krístinn Hugason við erindisflutning á
Landsfundi rœktenda íslenska hestsins í
Kassel í Þýskalandi. Við hlið Kristins
stendur Guðjón Kristinsson dýralœknir
sem var annar tveggja túlka á lands-
fundinum en Kristín Halldórsdóttir bú-
frœðikandídat var hinn og tók myndina.
verjar hana. Undirritaður er þeirrar
skoðunar, og hefir ætíð verið, að
okkur íslendingum beri forystu-
hlutverkið á sviði ræktunar íslenska
hestsins og er þá átt við bæði hvað
varðar árangur í ræktun og hinn
félagslega þátt. í ræktuninni höfum
við yfirburði þó ekki megum við
sofna á verðinum þar eitt andartak.
Hvað hinn félagslega þátt varðar er
um að ræða markaðsmál og í þessu
sambandi telur greinarhöfundur
mikla ástæðu til að koma íslendingi
í sæti ræktunarfulltrúa FEIF. Það
sæti getur enginn skipað með
neinum sóma nema maður á besta
aldri sem er á kafi í hrossarækt-
arstarfinu og nýtur viðtæks trausts
hér heima og erlendis.
Mat greinarhöfundar er það að
Víkingur Gunnarsson hefði náð
kjöri í embættið á aðalfundinum
1993 en hann var ófáanlegur í fram-
boð, vildi þess í stað leggja áfram
áherslu á starf í ræktunarráðinu fyrst
f stað og ætlaði auk þess að fá leyfi
frá störfum á meðan hann stundaði
framhaldsnám í hrossafræðum á
Bretlandseyjum en það nám hefur
hann nú hafið og mun það taka rúm-
lega eitt ár. Jón Vilmundarson
ráðunautur leysir Víking nú af hólmi
í störfum innan FEIF. Fleiri tækifæri
munu gefast til að fá kjörinn rækt-
unarfulltrúa FEIF héðan frá íslandi,
staðan hefur ekki versnað þó ein-
hver tími hafi e.t.v. glatast.
Sá merki atburður átti sér stað í
Víkingur Gunnarsson ráðunautur ásamt meðdómendum sínum að störfum á kyn-
bótasýningu Heimsleikanna í Hollandi 1993. LjmK.H.
Séð yfir hluta fundarsalarins á landsfundinum í Kassel en alls hlýddu um 150 manns
á fyrirlesturinn. Kristinn útskýrir gleerur.
vor að Norðmenn samþykktu að
taka íslenska dómkerfið upp í heild
sinni og dæmdu greinarhöfundur og
Víkingur Gunnarsson á héraðssýn-
ingu í Noregi í vor. Dómsniður-
stöður þaðan voru umsvifalaust
skráðar inn í Feng og komu inn í
kynbótauppgjör í sumar. Nú nýverið
var greinarhöfundur síðan á fundi
með Norsk Islandshestforening og
Norsk Hestesenter, þar sem fjallað
var um möguleika þess að Búnað-
arfélag íslands myndi í framtíðinni
sjá bæði um dómstörf og skýrslu-
hald varðandi íslensk hross í Noregi.
Á árinu 1994 hefur það helst borið
til tíðinda að öðru leyti á þessum
vettvangi að Víkingur og Jón Vil-
mundarson sóttu fund ræktunarfull-
trúa FEIF í Hollandi þann 27.
febrúar. Að afloknu landsmótinu var
aðalfundur FEIF haldinn í Bænda-
höllinni í Reykjavík þann 4. júlí og
25 ára afmæli FEIF var haldið
hátíðlegt í Viðey þá um kvöldið og
ráðstefna og kynning á íslenska
dómkerfinu á kynbótahrossum var
haldin á Hólum, dagana 6. til 7. júlí.
í framhaldi ráðstefnunnar á Hólum
Frh. á bls. 860.
22'94 - FREYR 833