Freyr - 15.11.1994, Qupperneq 19
HROSSARÆKTIN í FRAMKVÆMD
''ERFÐAFRAMFÖR"
I
SKYRSLUHALD
Grunnskráning
Fangskýrslur
Búsbækur
Nolkun valinna gripa
í ræktuninni
. i
KYNBÓTADÓMAR
URVAL^
■ KYNBÓTAMAT
(BLUP)
FRÆÐILEG UNDIRSTAÐA
MÓTUN KYNBÓTAMARKMIÐS
(Brecding objcclivc)
Mælingar vcrömætra ciginlcika
Kynbótafræðilcg grcining
LciÖréltingar fyrir umhvcrfisáhrifum
Mat á crfÖa|>állum
Val ciginlcika sem vaiiÖ skal fyrir,
ÚRVALSMARK, úrvalsskilyröi
(Sclection critcria)
' KYNBÓTASKIPULAG
bandi hestamannafélaga. í Hrossa-
ræktamefnd eiga nú sæti: Víkingur
Gunnarsson, Jón Vilmundarson og
Guðmundur Sigurðsson héraðs-
ráðunautar og bændurnir Einar E.
Gíslason, Skúli Ö. Kristjónsson og
Þórir ísólfsson. Formaður Hrossa-
ræktamefndar er Kristinn Hugason
og varaformaður Þorkell Bjarnason.
Nú unt stundir eru unnin u.þ.b. sjö
ársverk í sambandi við leiðbeininga-
þjónustuna í hrossaræktinni á Is-
landi. Stöður landsráðuiiauta eru
tvær hjá Búnaðarfélagi Islands og
u.þ.b. tvö og hálft ársverk eru unnin
í tölvudeild Búnaðarfélagsins við
forritun og skráningu tölvutækra
upplýsinga hrossaræktarinnar og
u.þ.b. tvö og hálft ársverk eru unnin
úti í búnaðarsamböndunum við
ýmsa þætti leiðbeininga í greininni.
Einn héraðsráðunautur er í fullu
starfi, tveir eru í u.þ.b. hálfu starfi
og hlutastörf margra mynda u.þ.b.
hálft starf. Á næstu árum er ljóst að
ekki verður um að ræða nema eitt
starf landsráðunautar enda er það
nægjanlegt en hins vegar þyrfti
þjónustan bæði í tölvudeild
Búnaðarfélags íslands og úti í
búnaðarsamböndunum að aukast
helst um tvö störf, eitt á hvorum
stað. Mestur hluti af starfsemi
Búnaðarfélags íslands er kostaðar af
hinu opinbera; þó hafa sértekjur l.d.
í hrossaræktinni aukist umtalsvert á
síðustu árum. Af launahlut héraðs-
ráðunauta koma 65% frá hinu opin-
bera en sjóðagjöld landbúnaðarins
og ýmsar sértekjur eru nýttar til að
standa straum af launahlut búnað-
arsambandanna.
Störf leiðbeiningaþjónustunnar í
hrossaræktinni felast í ýmsu, helstu
þættirnir eru vinna við skýrsluhald,
dómstörf, útreikningur kynbótamats
og útgáfustörf. Forystan í öllum
þessum atriðum er í höndum lands-
ráðunauta Búnaðarfélags íslands
sem sinna verkum sínum undir
stjórn búnaðarmálastjóra sem stjóm-
ar í umboði félagsstjórnar, en allt
starf landsráðunauta verður að fara
fram í samræmi við ákvarðanir og
stefnumótun Hrossaræktarnefndar.
Héraðsráðunautar eru samverka-
menn landsráðunauta í leiðbeining-
arstörfunum. Um hvem hinna helstu
þátta starfa leiðbeiningaþjónustunn-
ar verður fjallað í sérstökum köflum
hér á eftir.
2. mynd. Hrossarœktin íframkvœmd.
3. Kynbótamarkmið
Kynbótamarkmið íslenskrar hrossa-
ræktar er ákaflega víðfemt. í því
felst að auka stærð, fegurð og hæfni
hrossanna, mælt á kvarða dóm-
stigans, en um leið þarf að viðhalda
fjölbreytileika stofnsins, hreysti
hans og frjósemi.
I töflunni og á myndinni (1. töflu
og 2. mynd) hér á eftir koma fram
stig hins skipulega kynbótastarfs á
íslandi og hvemig þau stig tengjast
saman.
4. Skýrsluhald og
skráning
Einhverskonar skráning undan-
eldisgripa á sér langa sögu á íslandi
þó ekki séu nema fáein ár síðan
öflugt tölvuvætt skýrsluhald hélt
innreið sína í hrossaræktina á land-
inu. Segja má að upphaf skýrslu-
halds í hrossarækt hefjist við færslu
Ættbókar Búnaðarfélags Islands
fyrir undaneldishross árið 1923.
Hrossin sem færð voru í ættbók allar
götur til 1986, fengu raðnúmer
(ættbókarnúmer) og einungis þau
hross sem ákveðnum árangri náðu á
kynbótasýningum voru færð til
ættbókar. Á árinu 1987 var loks
tekið upp nýtt númerakerfi; fœðing-
arnúmer, þá var jafnframt hafin
samræmd skráning allra dóma af
kynbótasýningum. Á árinu 1990 var
1. tafla. Stig skipulegs kynbótastarfs. Stig skipulegs kynbótastarfs.
Stig Á starfssviöi
í. KynbótamnrkmiO (brccding objcctive) Ræktcnda Framkvæmdaraðila kynbótastnrfsins Vísindainnnna
2. Auðkenning og skráning Framkvæindaraöila kynbótastarfsins
3. Val ciginleika scin valið skal fyrir (úrvalsmark eöa úrvalsskilyrði) (sdection critcria) Framkvæindaraðila kynbótastarfsins Vísindainanna
4. Kynbótafræðilcg greining Vísindamanna Framkvæmdaraðila kynbótastarfsins
5. Kynbótamat Vísindninanna Frainkvæmdaraöila kynbótastarfsins
6. Kynbótaskipulagning Vísindamanna Framkvæmdaraðila kynbótastarfsins
7. Úrval Ræktcnda Framkvæmdaraöila kynbótastarfsins
22*94 - FREYR 835